Áfram fjallað um skuldavanda
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, heilsar Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Íslandsbanka, fyrir fundinn í kvöld. mbl.is/Kristinn
Fulltrúar ríkisstjórnar og stjórnarandstöðu eru nú að hefja fund með fulltrúum fjármálafyrirtækja, Íbúðalánasjóðs og lífeyrissjóðanna auk Hagsmunasamtaka heimilanna, talsmanni neytenda og umboðsmanni skuldara þar sem fjallað er um skuldavanda og leiðir til að vinna á honum.
Samráðshópur ráðherra og stjórnarandstöðu hefur haldið fundi í vikunni með ýmsum aðilum um málið. Í morgun var haldinn fundur forsætisráðherra, fjármálaráðherra, dóms- og mannréttindaráðherra, efnahags- og viðskiptaráðherra og félags- og tryggingamálaráðherra fulltrúar Framsóknarflokks, Hreyfingarinnar og Sjálfstæðisflokks.
Samkvæmt upplýsingum frá forsætisráðuneytinu var á fundinum aðallega fjallað um nauðsynlegar aðgerðir til bregðast við bráðavanda þeirra heimila sem verst standa og fyrirhugaðar betrumbætur á fyrirliggjandi úrræðum heimila og fyrirtækja til lausnar á skuldavandanum.
Ráðherrar gerðu grein fyrir lagafrumvörpum sem unnið
er að og senn verða tekin fyrir á Alþingi, m.a. til að framlengja heimildir til
að fresta nauðungarsölum, heimildir til umboðsmanns skuldara sem veita
skuldugum heimilum skjól fyrir uppboðum um leið og þau leita aðstoðar hjá
embættinu, úrlausn gengisbundinna lána, aukið skjól fyrir ábyrgðarmenn á lánum í
greiðsluaðlögun, lyklafrumvarp, fyrningu skulda við gjaldþrot o.fl. Ákveðið var
að öll stjórnarfrumvörp um lausnir vegna skuldamála færu samtímis til allra
flokka á Alþingi í stað þess að fara aðeins til stjórnarflokkanna eins og verið
hefur.
Þá ítrekaði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, óskir um víðtækt samstarf við
stjórnarandstöðu um lausn skuldavandans og sambærilegt samráð yrði haft um
tillögur stjórnarandstöðunnar sem leitt gætu til farsællar lausna.
Jóhanna sagði við Útvarpið í kvöld, að eftir þessa viku komi í ljós hvort vilji sé til samstarfs allra aðila til að leysa skuldavanda heimila og fyrirtækja. Verði svo, séu stjórnvöld komin hálfa leið með að leysa hann.
Bloggað um fréttina
-
Viggó Jörgensson Vill fá að sitja lengur. -
Einar Guðjónsson Ef rétt reynist.. -
Gunnar Waage Ríkisstjórninni boðið í Ommilettu -
Jóhannes Ragnarsson Þórðargleði brennuvarga og svikull forystulýður -
Björn Birgisson Skaðast skuldlausir stórlega vegna skulda annarra? -
Ómar Geirsson Þjófnaðurinn staðfestur.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 13. október 2010, Innlent 20% heimila yfirveðsett
- Fimmtudagur, 14. október 2010, Innlent Almenn niðurfærsla skulda ólíkleg
- Mánudagur, 11. október 2010, Innlent Minnihluti hefur látið fresta lokauppboðum
- Þriðjudagur, 9. nóvember 2010, Innlent Fundum með flokksformönnum frestað
- Laugardagur, 18. september 2010, Innlent Óskar eftir fundi í viðskiptanefnd
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































