Börn boða frið

Leikskólabörn mynduðu friðarmerki á Ingólfstorgi í dag.
Leikskólabörn mynduðu friðarmerki á Ingólfstorgi í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Leikskólabörn í Reykjavík boðuðu frið í dag og mynduðu meðal annars stórt friðarmerki á Ingólfstorgi eftir friðargöngu, sem farin var frá Skólavörðuholti niður í miðbæinn.

Friðargangan var hluti af viðburðaröð Imagine Reykjavík, sem haldin er í tilefni af því að 70 ár eru liðin frá því John Lennon fæddist. 

Samkvæmt upplýsingum frá Höfuðborgarstofu er talið að um 500 börn og leikskólakennarar hafi tekið þátt í friðargöngunni en börnin hafa undanfarna daga verið að mála og teikna kröfuspjöld til að bera í göngunni. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert