Lér samþykktur en Cæsar hafnað

Mannanafnanefnd hefur á ný hafnað því að taka eiginnafnið Cæsar á mannanafnaskrá sem rithátt af eiginnafninu Sesar. Nefndin hafnaði ósk um þetta í sumar en tók beiðnina fyrir að nýju í september.

Nefndin segir í úrskurði, að ekki sé hefð fyrir rithættinum Cæsar og engu breyti þótt eiginnöfn, sem byrji á bókstafnum C séu þegar færð á mannafnaskrá, svo sem Carl, eða Cecil á þeirri forsendu, að hefð sé talin vera fyrir slíkum rithætti.  

Mannanafnanefnd hefur samþykkt nokkur nöfn. Þeirra á meðal eru nöfnin Lér,  Nóam, Kaspar, Ronald og Leona. Nefndin hafnaði hins vegar að taka nöfnin Yana og Anya.

Vefur mannanafnanefndar
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert