Silfurreynir færir út kvíarnar
Meðfylgjandi ljósmynd af silfurreyninum við Aðalstræti var tekin þann 26. maí sl. á 125 ára afmælisdegi Garðyrkjufélags Íslands Ljósmynd Stefán Sæmundsson.
Á mánudag munu Guðrún Pálsdóttir bæjarstjóri Kópavogs, Guðríður Arnardóttir formaður bæjarráðs og Vilhjálmur Lúðvíksson formaður Garðyrkjufélags Íslands gróðursetja vefjaræktað eintak af silfurreyninum í Fógetagarðinum við Aðalstræti.
Það tré er talið elsta innflutta tré landsins sem enn lifir og markar tímamót í sögu garðræktar á Íslandi. Trénu var valin staður við tjörnina í Kópavogslæk neðan Fífuhvamms.
Silfurreynirinn við Aðalstræti var upprunalega gróðursettur árið 1884 af Hans Georg Schierbeck, þáverandi landlækni, sem hafði forgöngu um stofnun Garðyrkjufélagsins (Hins íslenska garðyrkjufélags) árið 1885. Tréð hefur staðið af sér óblíð veður og umhverfisálag við Aðalstræti í langan tíma og virðist sérlega öflugur einstaklingur.
Þuríði Yngvadóttur hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur tókst fyrir um tólf árum að fjölga þessu tré með vefjaræktun (þ.e. klóna tréð) og tryggja þannig tilvist nákvæmlega sama erfðaefnis í nýjum einstaklingum. Plönturnar voru síðan framræktaðar af Ólafi S. Njálssyni í Garðplöntustöðinni Nátthaga.
Eintakið sem verður gróðursett er yfir 3,5 m á hæð og er lifandi minnismerki um það starf sem hófst um það leyti sem Garðyrkjufélagið var stofnað. Garðyrkjufélag Íslands hefur hug á að færa fleiri sveitarfélögum á landinu samskonar minnisvarð, segir í fréttatilkynningu.
Önnur vefjaræktuð tré af sama silfurreyni hafa nú þegar verið gróðursett í Hveragerði og Seltjarnarnesi, nú þegar hafa Akureyrarkaupstaður og sveitarfélagið Árborg samþykkt að þiggja samskonar tré að gjöf frá Garðyrkjufélaginu.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 15. júní 2010, Innlent Fjögurra flokka meirihluti tekur til starfa
- Laugardagur, 12. febrúar 2011, Innlent Kanna lögmæti auglýsingar um FME
- Fimmtudagur, 27. janúar 2011, Innlent Breyttir tímar í Kópavogi
- Laugardagur, 4. september 2010, Innlent Hópreið á Kjóavöllum: Gustur fær nýja reiðhöll
- Föstudagur, 4. júní 2010, Innlent Nýr bæjarstjóri Kópavogs
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































