Í 20 mánaða fangelsi fyrir kannabisræktun
Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt tvo 26 ára gamla karlmenn í 20 mánaða fangelsi fyrir stórfellda kannabisræktun í Þykkvabæ. Tveir menn voru hins vegar sýknaðir af ákæru. Ekki var fallist á kröfu lögreglu um að gera upptækar tæpar 12 milljónir króna og 7265 evrur, sem lagt var hald á við rannsókn málsins.
Þá dæmdi Héraðsdómur Reykjavíkur í dag 29 ára gamlan karlmann í 4 mánaða fangelsi fyrir að rækta 110 kannabisplöntur og hafa í vörslum sínum 66,33 grömm af maríjúana og 1,42 grömm af sveppum.
Í gær dæmdi Héraðsdómur Reykjaness karlmann á fimmtugsaldri í 8 mánaða fangelsi fyrir að vera með rúm 2,6 kíló af kannabislaufum og 212 kannabisplöntur í fórum sínum. Þá var hann með rúm 2,5 kíló af maríjúana og 0,13 grömm af hassi.
Í málinu í Þykkvabæ voru mennirnir dæmdir fyrir að hafa í ágúst 2008 sett upp mjög stóra ræktunaraðstöðu fyrir allt að 500 kannabisplöntur í útihúsi í Þykkvabæ. Lögregla fann verksmiðjuna síðan ári síðar. Þá voru þar 493 kannabisplöntur sem samtals vógu 68 kíló, 2,7 kíló af kannabislaufum og 10,98 grömm af hassi.
Mennirnir hafa báðir hlotið dóma áður fyrir ýmis brot, þar á meðal fíkniefnabrot. Í bankahólfi annars þeirra fundust 11,8 milljónir króna í seðlum og 7265 evrur. Lögregla krafðist þess að féð yrði gert upptækt þar sem það væri hagnaður af fíkniefnasölu. Dómurinn segir, að þótt skýringar mannsins á
tilurð fjárins kunni að virðast ótrúverðugar og lúti meira og minna allar að
skattundanskotum og fjárhættuspilum, þá breyti það ekki því, að engar sönnur
hafi verið færðar á það að ávinningur hafi orðið af brotinu eða að fjárins hafi
að öðru leyti verið aflað með fíkniefnasölu.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 14. apríl 2011, Innlent Fangelsi fyrir kannabisrækt
- Mánudagur, 12. september 2011, Innlent Hálfs árs fangelsi fyrir kannabisræktun
- Mánudagur, 23. maí 2011, Innlent 9 mánaða fangelsi fyrir kannabisrækt
- Miðvikudagur, 12. október 2011, Innlent Tveir dæmdir fyrir kannabisræktun
- Þriðjudagur, 20. september 2011, Innlent Í fangelsi fyrir kannabisrækt
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































