Hagsmunasamtökin dregin á asnaeyrunum

Ögmundur Jónasson dómsmálaráðherra heilsar Marínó Njálssyni hjá Hagsmunasamtökum heimilanna á …
Ögmundur Jónasson dómsmálaráðherra heilsar Marínó Njálssyni hjá Hagsmunasamtökum heimilanna á fundinum í Þjóðmenningarhúsinu. mbl.is/Kristinn

Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna segist hafa verið dregin á asnaeyrunum í tvær vikur af „getulausu stjórnkerfi“. Þetta kemur fram pistli á vef samtakanna, þar sem samtökin gagnrýna m.a. stjórnmálamenn, ASÍ, og umboðsmann skuldara harðlega.

Vísað er til fundar sem samtökin sátu ásamt stjórnmálamönnum og fulltrúum vinnumarkaðarins.

„Það glæddist með okkur smá von er fulltrúar okkar urðu vitni að því þegar hver stjórnmálamaðurinn á fætur öðrum húðskammaði forkólfa fjármálakerfisins á fundi í Þjóðmenningarhúsinu á miðvikudagskvöld. Þeir voru reiðir, það fór ekkert á milli mála. Þeir voru reiðir af því þeir voru að fá hitann frá almenningi. Hita vegna afglapa og þvermóðsku fjármálaaðalsins,“ segir í pistlinum.

Þá segir að umboðsmaður skuldara „er lítið annað en leppur fjármálafyrirtækjanna til að afklæða fólk síðustu spjörunum áður en það er leitt nakið í 3 til 5 ára þrælkun fyrir fjármálafyrirtækin. Í besta falli er Umboðsmaður skuldara mús í mannheimum. Gagnslaus fyrir skuldara, röng manneskja á röngum stað. ASÍ tók skýra afstöðu gegn heimilunum. Þeir hafa skipað sér í lið með forkólfum auðvalds og spillingar,“ segja Hagsmunasamtök heimilanna.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert