Kynjagleraugun sett upp á Akureyri
Guðrún Þórsdóttir býr sig undir að næla kynjagleraugun í Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjón. Til hægri er Hermann Jón Tómasson bæjarfulltrúi og fyrrverandi bæjarstjóri. mbl.is/Skapti Hallgrímsson
Aflið á Akureyri, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, bauð í dag til sín ýmsum stjórum og stýrum í bænum, nældi í þau kynjagleraugun sem verið er að selja víða um land - og lét viðkomandi að sjálfsögðu borga þúsund kall fyrir. Guðrún Þórsdóttir talskona Aflsins segir að sala á Akureyri hafi almennt gengið vel.
Kynjagleraugun eru seld um allt land og rennur allur ágóðinn til baráttunnar gegn kynferðisofbeldi. Í Reykjavík rennur ágóðinn til Stígamóta, á Ísafirði til Sólstafa á Akureyri til Aflsins. Skotturnar, regnhlífasamtök ýmissa kvennasamtaka og félaga standa að söfnunni „og eiga þær þakkir skilið fyrir ótrúlega vel unnin störf,“ segir Guðrún Þórsdóttir.
Hrím hönnunarhús á Akureyri hannaði merkið sem selt er, gleraugu þar sem annað glerið er bleikt og hitt blátt. Einnig er seld bókin Á mannamáli eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur og stór hluti ágóða bókarinnar rennur til málefnisins.
Guðrún Þórsdóttir segir merkja- og bóksölu hafa farið mjög vel af stað um land allt en henni lýkur á Kvennafrídaginn, 25. október.
Bæjarstjórinn á Akureyri, Eiríkur Björn Björgvinsson, tilkynnti boðsgestum hjá Aflinu í dag að hann hafi sent öllum yfirmönnum hjá bænum þau skilaboð að bregðast vel við því, væri þess nokkur kostur, ef konur leggðu niður störf um tíma þann dag en íslenskar konur stefna að því að hætta störfum kl. 14.25 á Kvennafrídaginn.
Guðrún tilkynnti að Jafnréttisstýra, Kristín Ástgeirsdóttir, hefði keypt kynjagleraugu fyrir alla sjö starfsmenn Jafnréttisstofu og fagnaði því framtaki.
Bloggað um fréttina
-
Axel Jóhann Hallgrímsson Jafnréttishalli á Jafnréttisstofu. -
Guðrún María Óskarsdóttir. Þverpólítísk flokkagleraugu er það sem Ísland þarf.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 3. ágúst 2011, Innlent Gott samstarf á Einni með öllu
- Fimmtudagur, 2. desember 2010, Innlent Kærleikskúlan til Bjöllukórsins
- Föstudagur, 6. ágúst 2010, Innlent Söfnuðu fyrir Aflið
- Miðvikudagur, 18. maí 2011, Innlent Aldrei fleiri viðtöl
- Föstudagur, 5. ágúst 2011, Innlent Þurfa að hafa skikk á bæjarhátíðunum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“






































