Ögmundur: Ekkert óðagot
Ögmundur Jónasson segir að óðagotsvinnubrögð verði ekki viðhöfð á meðan hann gegni embætti dómsmálaráðherra. Fréttir af skipulagsbreytingum innan lögreglunnar séu úr lausu lofti gripnar. „Staðreyndin er sú að þetta eru mál sem engan veginn eru útrædd og niðurstöður liggja ekki fyrir,“ skrifar Ögmundur á heimasíðu sína.
Hann segir að í starfi sínu sem formaður BSRB hafi hann oft þurft að fást við afleiðingar slakra vinnubragða innan stjórnsýslunnar. Það hafi ekki verið síst þegar ráðist hafi verið í vanhugsaðar breytingar sem ekki höfðu verið hugsaðar til enda.
„Þess vegna brá mér við fréttir RÚV í dag þar sem sagt var frá skipulagsbreytingum innan lögreglunnar, sem fréttastofan hafði „heimildir um." Fyrir mig voru þetta hins vegar fréttir - úr lausu lofti gripnar - og heyrir þessi málaflokkur þó undir ráðuneyti þar sem ég er í forsvari. Landssamband lögreglumanna mótmælti sögusögnum fréttastofunnar sem ég efast ekki um að eru komnar frá embættismönnum sem ranglega telja sig hafa umboð til að ráðskast með stjórnsýsluna,“ skrifar Ögmundur. Þess ber að geta að mbl.is vísaði í frétt RÚV fyrr í dag.
Þá segir hann að umræða um breytingar á réttarkerfinu sé dæmi um vinnubrögð sem hann kunni að meta. Á málþingi Lögmannafélagsins hafi komið fram sameiginlegur skilningur lögmanna og dómara um nauðsynlegar breytingar á dómskerfinu á þá lund að mynduð yrðu þrjú dómstig í stað tveggja.
„Ekki hafa allir verið á eitt sáttir um þetta í tímans rás en ljóst er að umræðan er á enda runnin og að nú vilji flestir koma þessari hugmynd í framkvæmd. Jafnvel efasemdarmenn um skipulagsbreytingarnar fallast á þetta. Málið þykir útrætt,“ skrifar Ögmundur.
Hann bætir við að dómskerfinu á Íslandi eigi ekki að breyta í fljótræði og hið sama eigi við um
löggæsluna. Breytingar þurfi að vera vel ígrundaðar og helst þurfi að
ríkja um þær sátt.
Bloggað um fréttina
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson Kommúnistinn Ögmundur hyggst stórveikja löggæslu! -
Flosi Kristjánsson Óskhyggja af hálfu fréttamanna? -
-
Guðrún María Óskarsdóttir. Eru fréttirnar ekki vegna rannsóknar á lífeyrissjóðnum. -
Haraldur Haraldsson Ögmundur: Ekkert óðagot/ því á að beita þessu þá i ... -
Axel Jóhann Hallgrímsson Verum hress, ekkert stress -
Ólafur Gíslason Öngstræti, óðagot og Ögmundur
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 17. ágúst 2011, Innlent Undrast fréttaflutning af flótta
- Miðvikudagur, 10. mars 2010, Innlent Til í sæti á réttum forsendum
- Laugardagur, 24. september 2011, Innlent Ekki þörf á sérstökum ráðstöfunum
- Föstudagur, 8. október 2010, Innlent Skoðar meðferð kynferðisbrota
- Fimmtudagur, 6. október 2011, Innlent Staðan í kjaramálum lögreglunnar óviðunandi
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































