„Verið eins og Galíleuvatn“
„Hér virðast vera fleiri fórnarlömb en leiðtogar - hvað þá skapandi leiðtogar,“ sagði séra Skúli S. Ólafsson, prestur í Keflavíkurkirkju, í sunnudagspredikun sinni, sem var útvarpað beint á Rás 1. Skúli fjallaði um fátækt í predikun sinni og þann vanda sem Suðurnesjamenn standa frammi fyrir í atvinnumálum.
Hann minntist á að nú sé Evrópuár gegn fátækt og félagslegri einangrun.
„Nú er ár fátæktar á Íslandi - nú eru ár fátæktar. Hið þriðja hófst nú fyrr í þessum mánuði þegar tvö ár voru liðin frá hruninu,“ sagði hann.
„Hér á Suðurnesjunum standa túrbínurnar innpakkaðar í skemmum og skapa ekki önnur verðmæti en vaxtagreiðslurnar sem renna að endingu úr landi. Verra er það með orkulindirnar sem brjóstum okkar búa, ef ekki rofar senn til. Það fer meira fyrir þolendum en gerendum nú á þessum tímum. Hér virðast vera fleiri fórnarlömb en leiðtogar - hvað þá skapandi leiðtogar. Hvað eigum við að gera, spyrjum við líka,“ sagði Skúli.
Hann segir að enginn af holdi og blóði geti þagað, þegar hann horfir upp á það ástand sem hér sé. Í atvinnulífi, í velferðarmálum, í málefnum sjúklinga, aldraðra og deyjandi. „Sætir það virkilega furðu þótt menn rísi upp og hvetji til þess í Jesú nafni að gripið sé til aðgerða,“ sagði Skúli.
„Verið eins og Galíleuvatn. Ekki vera Dauðahafið. Hér eru vissulega engar einfaldar lausnir en það á ekki að hamla okkur, því við erum ekki einfaldar sálir. Við erum skapandi einstaklingar sem eigum að starfa og hugsa, eins og leiðtogar. Eða með öðrum orðum, fólk sem vill láta gott af sér leiða,“ sagði hann.
Skúli segir að íslensk stjórnmál séu gegnsýrð af þeirri hugsun að áhrifin snúist öll um takmörkuð völd fremur en þjónustuna sem eigi sér engin takmörk.
„Þeir sem eiga mikið eiga að hugsa til himna, ekki í Þórðargleði yfir óförum annarra , sem eru einkenni lítilmenna. Heldur í umhyggju og kærleika þess sem veit og skilur að það er sælla að gefa en þiggja,“ sagði hann og vísaði til orða Jóhannesar skírara.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Ákvörðun S&P í samræmi við væntingar
- Sunnudagur, 29. ágúst 2010, Innlent Segir allt stjórnkerfið hafa stutt Ólaf
- Miðvikudagur, 10. febrúar 2010, Innlent Íbúar mótmæla niðurskurði
- Þriðjudagur, 2. febrúar 2010, Innlent Andstaða við Húnavallaleið
- Föstudagur, 17. september 2010, Innlent „Þrautskipulögð árás“
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































