Ögmundur: „Látið Liu Xiaobo lausan“

Ögmundur Jónasson, dóms- og mannréttindaráðherra.
Ögmundur Jónasson, dóms- og mannréttindaráðherra. mbl.is/Ómar

Ögmundur Jónasson, dóms- og mannréttindaráðherra, skrifar um kínverska andófsmanninn Liu Xiaobo, sem hlaut nýverið friðarverlaun Nóbels, á vefsíðu sinni. „Skilaboðin til kínverskra stjórnvalda eru skýr: segir Ögmundur.

„Liu Xiaobo, handhafi friðarverðlauna Nóbels, situr í fangelsi í heimalandi sínu Kína. Hann er samviskufangi. Þúsundir og hundruð þúsunda sitja í fangelsi vegna skoðana sinna í Kína og víðs vegar um heiminn. Heimsbyggðin hefur staðnæmst við nafn Nóbelsverðlaunahafans því það er táknrænt fyrir alla hina sem grundvallarmannréttindi eru brotin á. Krafa um að leysa Liu Xiaobo úr haldi er því krafa um að mannréttindi séu virt. Skilaboðin til kínverskra stjórnvalda eru skýr: LÁTIÐ LIU XIAOBO LAUSAN!“

Heimasíða Ögmundar Jónassonar.

Stuðningsmenn Liu Xiaobo hafa krafist lausnar hans.
Stuðningsmenn Liu Xiaobo hafa krafist lausnar hans. Reuters
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert