Búið að endurreikna lán 25-30 þúsund einstaklinga

Efnahags- og viðskiptaráðuneytið áætlar að fjármálafyrirtæki hafi nú þegar endurreiknað gengisbundna lánasamninga 25 til 30 þúsund einstaklinga. Þeir lántakendur sem um ræðir hafa fengið tilkynningu um lækkun eftirstöðva lánsins í heimabanka nú þegar eða munu fá tilkynningu á næstu dögum og vikum.

Fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu, að boðað frumvarp, sem á að tryggja að dómur Hæstaréttar nái til allra gengisbundinna lána til húsnæðis- og bílakaupa, verður að óbreyttu lagt fram í ríkisstjórn á föstudag.

Segir ráðuneytið, að reglur um uppgjör tryggi þeim, sem hafi selt frá sér bíl eða íbúðarhúsnæði, sanngjarna endurgreiðslu og miði stór hluti vinnunnar að því að greiða úr slíkum málum. Sum fjármálafyrirtæki bjóði endurgreiðslu eða skuldajöfnun við höfuðstól. Nokkur fyrirtæki hafi ekki lausafé til að endurgreiða öllum lántakendum. Því sé í frumvarpinu heimild til skuldajöfnunar, sem tryggi að ekki komi til þrots lánastofnana og þar með að viðskiptavinir viðkomandi fyrirtækja tapi öllum kröfum sínum á hendur þeim.

Samkvæmt frumvarpinu munu eftirstöðvar lánanna lækka verulega við breytinguna, t.d. um 25-47% fyrir 25 ára lán.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert