Lýsing hefur lokið fyrsta hluta endurútreiknings

mbl.is/Ómar

Lýsing hefur opnað fyrir fyrsta hluta endurútreiknings bílasamninga til einstaklinga á þjónustuvef fyrirtækisins. Um er að ræða viðskiptavini sem eru með virka, óbreytta samninga.

„Í kjölfarið mun Lýsing ljúka endurútreikningi fyrir viðskiptavini sem eru með virka bílasamninga sem hafa farið í greiðsluraðarbreytingu eða greiðslujöfnun, ásamt þeim sem eru með mynt-/skuldbreytta samninga.

Flóknari samningar, t.d. þar sem skuldaraskipti (yfirtökur) hafa orðið á samningi, eða samningur er í riftunarferli, bíða frekari vinnslu og boðaðs frumvarps viðskiptaráðherra. Þá munu uppgerðir samningar verða endurreiknaðir í síðari áföngum. Send verða bréf til þeirra viðskiptavina sem eru í hverjum áfanga fyrir sig með frekari upplýsingum. Í núverandi áfanga eru 8.411 bílasamningar endurreiknaðir,“ segir í tilkynningu frá Lýsingu.

Nánar á vef Lýsingar.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert