Tóku atvinnumálin í gíslingu
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, sagði við setningu ársfundar ASÍ að svo virðist sem fámennur hópur hefði tekið málaflokkinn atvinnumál í gíslingu og ríkisstjórnin hefði misst forræði á málinu. Hann gagnrýndi ríkisstjórnina fyrir að hafa ekki staðið við gefin fyrirheit.
Gylfi sagði að margir innan verkalýðshreyfingarinnar hafi upplifað þetta ár sem ár hinnar brostnu vona. Þess vegna væri yfirskrift þessa fundar „Stopp - hingað og ekki lengra.“
Gylfi fór yfir hvernig gengið hefði að efna stöðugleikasáttmálann sem gerður var í júní 2009. Litlu hefði munað að atvinnurekendur hefðu sagt sig frá sáttmálana, „en það gerðu stjórnvöld hins vegar í reynd. Þau gerðu það ekki með formlegum hætti eins og heiðarlegast hefði verið, heldur með endurteknum og alvarlegum vanefndum á þeim þáttum sem þau höfðu gefið fyrirheit um.
Það á við um loforð stjórnvalda um náið samráð í veigamiklum málum sem varða hagsmuni launafólks, en alvarlegast og sárast hefur þó verið ótrúlegt framtaksleysi stjórnvalda í atvinnumálum og nauðsynlegar atvinnu- og tekjuskapandi framkvæmdir. Það er mikið áhyggjuefni að svo virðist sem málaflokkurinn atvinnumál hafi verið tekinn í gíslingu fámenns hóps og ríkisstjórnin í raun misst forræði á málinu,“ sagði Gylfi.
Gylfi sagði að ríkisstjórnin hefði í reynd ekki haft meirihluta á Alþingi til að koma málum sínum í gegn og stjórnarandstaðan hefði nýtt sér það. Við slíkar aðstæður væri ekki ólíklegt að það kæmi til kosninga.
„Það sem stjórnmálamenn og atvinnurekendur verða að gera sér grein fyrir, er að þegar þolinmæði okkar þrýtur er í reynd verið að þvinga fram ákveðið val um hvert skal halda því það sem ekki verður sótt með friði verður sótt með öllum þeim úrræði sem verkalýðshreyfingin býr yfir. Því getur fylgt mikill herkostnaður en ef okkur er ekki önnur leið fær verður hún farin.“
Bloggað um fréttina
-
Sigurður Haraldsson Hættið þessu væli! -
Jón Rúnar Ipsen hvar er afl ykkar -
Axel Jóhann Axelsson Forseti ASÍ rassskellir VG -
-
Helgi Rúnar Jónsson Órólega deildin í VG heldur stjórnini í gíslingu. -
Kristbjörn Árnason Fáránlegur málflutningur ASÍ forsetans -
Einar Guðjónsson Fari í talþjálfun. -
Kristján Jón Blöndal Stokkhólmsheilkennið hrjáir marga
Innlent »
- Telja neytendur eiga betri rétt
- Unnur Brá: Eina lausnin?
- Tæplega helmingur ók of hratt
- Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum
- Vatnsleki vegna ræktunar
- „Ég er komin með nóg“
- Allt að 25% verðmunur
- „Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“
- Perlan góður kostur fyrir safn
- Með kannabisgræðlinga í bíl
- Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum
- Efla þarf rannsóknir á höfunum
- Bað hana að leyna bréfunum
- Málið var kært, en fellt niður
- Óvíst um fordæmisgildi
- Farþegum með Norrænu fækkaði
- Undir áhrifum á ótryggðum bíl
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
- Þvottavélin lokaði hurðinni
- Borgarstarfsmenn ósáttari
Miðvikudagur, 22.2.2012
- Þingið brást stjórnlagaráði
- Ný skátaöld að hefjast
- Hefur afplánun á Skólavörðustíg
- Auka þarf umfang vöktunar
- Dráttur í beinni
- Þingmenn lesa Passíusálmana
- Ísing á Hellisheiði
- Lánað án trygginga og heimildar
- Allt að 100 ný störf
- Fimm sviptir á Suðurgötu
- Lagaramminn ekki sá einfaldasti
- Mikið sungið í bankanum
- Lögðu hald á marijúna og e-töflur
- Ábendingar til borgarinnar
- 2,1 milljarður í þróunarsjóði
- Jón Baldvin íhugar lögbann
- Varasamur vegarkafli
- Færri fara í tæknifrjóvganir
- Notaði munnhörpu sem hnúajárn
- Fá ekki frítt í sund
- Segist ekki saka sýslumenn um lögbrot
-
Ómarkviss þjóðaratkvæðagreiðsla
- Stjórnlagaráð
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Landsdómur
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 31. janúar 2011, Innlent Krefst þess að launafólki sé sýnd virðing
- Föstudagur, 4. febrúar 2011, Innlent Býst við að lausn finnist á sjávarútvegskröfu SA
- Laugardagur, 28. ágúst 2010, Innlent Vanmáttug ríkisstjórn
- Fimmtudagur, 22. október 2009, Innlent Heitar umræður um leiðir í kjaramálum
- Þriðjudagur, 30. nóvember 2010, Innlent Hækkanir hafa áhrif á launakröfur
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina
-
Bragi: Sorglegt baráttuleysi
Hótel- og veitingarekstur
Starfsmaður í sölu- og bókunardeild Cen...
Stjórnunarstörf
Sameinuð sjálfseignarstofnun er stofnuð ...




































