„Fólkið auðvitað bara grét“

Höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur.
Höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur. mbl.is/Árni Sæberg

„Þetta var áfall. Menn voru bara niðurbrotnir. Fólkið auðvitað bara grét, var með áhyggjur og leið rosalega illa,“ segir Júlíana Guðmundsdóttir, trúnaðarmaður hjá Orkuveitu Reykjavíkur, sem er í hópi þeirra sem sagt var upp í gær.

Orkuveitan sagði upp 65 starfsmönnum. Þeim voru tilkynntar uppsagnirnar um hádegisbilið í gær en þær taka gildi um mánaðamótin.

„Við vorum fyrsti hópurinn. Okkur var smalað saman og sagt að okkur væri öllum sagt upp störfum. Einn starfsmaður lá að vísu á sjúkrahúsi, en honum var líka sagt upp. Öðrum, sem er 62 ára gamall og búinn að vinna hjá OR í 37 ár, var þá sagt upp,“ segir Júlíana, sem starfaði á almannatengsla- og umsýslusviði, en nánar er fjallað um uppsagnirnar í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert