Skipuð saksóknari efnahagsbrota

Alda Hrönn Jóhannsdóttir
Alda Hrönn Jóhannsdóttir logreglan.is

Dómsmálaráðherra hefur skipað Öldu Hrönn Jóhannsdóttur, staðgengil lögreglustjórans á Suðurnesjum, í embætti saksóknara efnahagsbrotadeildar lögreglunnar frá og með deginum í dag, vegna leyfis Helga M. Gunnarssonar, skipaðs saksóknara.

Helgi var nýverið kjörinn varasaksóknari vegna ákæru Alþingis á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, fyrir landsdómi.

Ríkislögreglustjóri hefur ráðið Einar Tryggvason og Eyjólf Ármannsson sem aðstoðarsaksóknara.
 
Þá hefur ríkislögreglustjóri ráðið nýja starfsmenn og fjölgað starfsmönnum efnahagsbrotadeildar sem nú eru 15. Gert er ráð fyrir frekari fjölgun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert