Úlnliðsbrotnaði við Gullfoss

Gullfoss.
Gullfoss. mbl.is/RAX

Níutíu ára gamall ferðamaður hrasaði í síðustu viku við Gullfoss um helgina.  Hann úlnliðsbrotnaði og skrámaðist illa á andliti. Að sögn lögreglunnar á Selfossi maðurinn fluttur með sjúkrabíl til aðhlynningar á slysadeild Landspítala.

Þá handleggsbrotnaði ungur drengur þegar hann féll af torfæruhjóli í keppni sem fram fór á keppnissvæði við Þorlákshöfn.  Sjúkraflutningamenn á sjúkrabíl voru á staðnum, sem var liður í öryggismálum keppninnar.  Þeir hlúðu að dregnum og fluttu á slysadeild Landspítala.   

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert