Blindir Kópavogsbúar í mál
Stjórn Blindrafélagsins hefur ákveðið að fela lögmanni að sækja rétt lögblindra Kópavogsbúa til ferðaþjónustu sem uppfyllir markmið laga og ákvæða í Samningi Sameimuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra einstaklinga. Blindrafélagið hefur allt þetta ár ítrekað leitað eftir viðræðum við bæjaryfirvöld í Kópavogi um málið. Þeim óskum hefur í engu verið sinnt. Breytir þá engu hvort um fyrrverandi eða núverandi meirihluta er að ræða, Núverandi aðilar að bæjarstjórn Kópavogs lofuðu hinsvegar allir að farið yrði að lögum í þessum málum í kosningabaráttunni síðast liðið vor. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Blindrafélaginu.
Í fréttinni segir að sú afstaða Kópavogsbæjar að hafna eða hunsa með öllu réttmætar kröfur Blindrafélagsins um viðræður milli aðila, með það að markmiði að finna lausnir sem uppfylla skilyrði laga og mannréttindasamninga, hljóti að vera áhyggjuefni nú þegar til stendur að færa alfarið málefni fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Það á að gerast 1 janúar 2011. „Er það virkilega svo að fatlaðir einstaklingar megi eiga von á því að það velti á búsetu hvort að mannréttindi þeirra verði virt eða ekki,“ spyr Blindrafélagið.
Rökstuðningur Blindrafélagsins
Samkvæmt tölum frá Þjónustu og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga, eru um 470 einstaklingar búsettir á höfuðborgarsvæðinu sem skilgreindir eru lögblindir. Fjölmennastir í þessum hópi eru eldri borgarar. Í þessum hópi eru engu að síður einstaklingar á virkum vinnualdri sem hafa fulla starfsorku og vilja vera virkir í samfélaginu. Algengasta orsök þess að þeim einstaklingum tekst ekki að vera samfélagslega virkir er einangrun sem hlýst af því að geta ekki keyrt bifreið eða notað strætisvagna.
Af þeim 470 lögblindu einstaklingum sem búsettir eru á höfuðborgarsvæðinu eiga 411 kost á akstursþjónustu með leigubílum, samkvæmt samningum milli Blindrafélagsins og viðkomandi sveitarfélags, sem sérstaklega eru sniðnir að þörfum blindra og sjónskertra einstaklinga. Af þeim 59 sem ekki eiga kost á þess konar akstursþjónustu, eru 51 búsettir í Kópavogi.
„Nú er það svo að Ferðaþjónusta fatlaðra er mjög takmarkandi þjónustuúrræði sem engan vegin svarar þörfum allra einstaklinga sem vilja vera virkir í samfélaginu. Þjónustustig Ferðaþjónustu fatlaðra er einfaldlega ekki ásættanlegt í mörgum tilvikum, þó að í öðrum sé það vissulega fullnægjandi. Þarfir einstaklingana eru mismunandi og ekki er með neinu móti hægt að alhæfa að allir sem þurfa á aksturs og ferðaþjónustu að halda, hafi sömu þjónustuþörf,“ segir í frétt Blindrafélagsins.
Í lögum nr 52 frá 1992 um málefni fatlaðra er fjallað um ferðaþjónustu við fatlaða, þar segir:
„35. gr.Sveitarfélög skulu gefa fötluðum kost á ferðaþjónustu. Markmið ferðaþjónustu fatlaðra er að gera þeim sem ekki geta nýtt sér almenningsfarartæki kleift að stunda atvinnu og nám og njóta tómstunda. Sveitarfélög setja reglur um rekstur ferðaþjónustu fatlaðra.
Jafnframt skulu fatlaðir eiga rétt á ferðaþjónustu á vegum sveitarfélaga vegna aksturs á þjónustustofnanir skv. 1.–4. tölul. 9. gr. og vegna annarrar sértækrar þjónustu sem veitt er fötluðum sérstaklega.“
Sé tekið mið af einstaklingum sem eru félagar í Blindrafélaginu, hafa verið greindir lögblindir og eru búsettir í Kópavogi, þá getur félagið sagt með fullri vissu að sú ferðaþjónusta sem stendur þeim til boða sé ekki að mæta þörfum þeirra og gera þeim kleyft að stunda atvinnu eða nám og njóta tómstunda.
Í Sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra, sem íslenska ríkisstjórnin hefur skrifað undir, er fjallað um ferðaþjónustu við fatlaða. Þar segir:
Blindrafélagið, Reykjavíkurborg og Hreyfill hafa frá 1997 haft með sér samning um ferðaþjónustu blindra. Þessi þjónusta hefur mælst mjög vel fyrir meðal þeirra sem nýtt hafa sér þjónustuna og í raun haft úrslitaáhrif á möguleika þeirra til virkrar samfélagsþátttöku. Úttektir á vegum Reykjavíkurborgar á ferðaþjónustuúrræðum fatlaðra hafa jafnframt sýnt fram á að ferðaþjónusta blindra er hagkvæmasti úrræðið á vegum Reykjavíkurborgar, ásamt því að bjóða jafnframt upp á hæsta þjónustustigið.





































