Sparnaður hverfur fljótt

Frá borgarafundinum á Ísafirði í dag
Frá borgarafundinum á Ísafirði í dag Frá Bæjarins besta

Verði fjárveitingar til Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða skornar niður um 185 milljónir króna eins og lagt er til í fjárlagafrumvarpi ársins 2011 mun það varlega áætlað skila innan við 30 milljóna króna raunverulegum sparnaði fyrir ríkissjóð. Stór hluti áætlaðs sparnaðar hverfur með auknum flutningskostnaði.

Segja þarf upp 35 manns í 22 stöðugildum

Nái þessi niðurskurðarkrafa fram að ganga má hins vegar búast við að segja þurfi upp fimmta hverjum starfsmanni Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, eða um 35 manns í 22 stöðugildum. 

Þetta er meðal þess sem fram kemur í úttekt sem gerð hefur verið á efnahags- og samfélagslegum áhrifum fyrirhugaðs niðurskurðar á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða en hún var kynnt á borgarafundi í stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði í dag.

Skýrsluhöfundar segja að ómæld viðbótarútgjöld leggjast á íbúa og fyrirtæki á svæðinu vegna sjúkraferðalaga til Reykjavíkur og vegna lengri fjarveru með tilheyrandi vinnutapi. 

Það voru þau Dóra Hlín Gísladóttir verkfræðingur og Kristinn Hermannsson hagfræðingur sem unnu skýrsluna fyrir Heimavarnarliðið, sem eru grasrótarsamtök íbúa sem vilja standa vörð um heilbrigðisþjónustu á norðanverðum Vestfjörðum.

 Skýrsluhöfundar segja það ámælisvert að leggja til jafn róttæka breytingu á heilbrigðisþjónustu heils landssvæðis án þess að gerð sé tilraun til að meta afleiðingarnar sem hæglega geti orðið mun afdrifaríkari en fyrirhugaður sparnaður réttlætir.

Bent er á að niðurskurður heilbrigðisþjónustunnar auki kostnað við búsetu á svæðinu auk þess sem meiri fjarlægð frá sérhæfðri læknisþjónustu bjóði þeirri hættu heim að sjúklingar verði fyrir heilsutjóni af því að komast ekki undir læknishendur í tæka tíð, sem aftur hafi í för með sér mikinn samfélagslegan kostnað.

Sjúkraflutningskostnaður eykst um 60 milljónir

Í skýrslunni kemur fram að á hverju ári eru 600-800 sjúklingar lagðir inn á sjúkrahúsið á Ísafirði og verði starfsemi sjúkra- og hjúkrunarsviða Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða skert eins og tillagan gerir ráð fyrir megi reikna með að flytja þurfi 400-700 þessara sjúklinga suður til aðhlynningar. Áætlað er að aukin kostnaður ríkisins vegna þessara sjúkraflutninga geti numið tæpum 60 milljónum króna á ári.

Skýrsluhöfundar segja vandséð að það geti leitt til nettósparnaðar að leggja niður hjúkrunarrými í einum landshluta til þess eins að bæta við nýjum hjúkrunarrýmum annars staðar. Ekki sé hægt að gefa sér fyrirfram að mikill sparnaður náist með flutningi starfseminnar suður, jafnvel þó gengið sé út frá því að einungis þurfi 50% af þeim launakostnaði sem skorinn er niður til að veita sjúklingunum sömu þjónustu í Reykjavík.

Tilflutningur á opinberum störfum frá Vestfjörðum til höfuðborgarsvæðisins muni hins vegar fela í sér róttæka skerðingu á þjónustu á svæðinu með óafturkræfum afleiðingum, að því er segir í tilkynningu frá Heimavarnarliðinu.

Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði.
Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði. mynd/bb.is
Fjölmenni er á fundinum á Ísafirði
Fjölmenni er á fundinum á Ísafirði Ljósmynd Halldór Sveinbjörnsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert