Vilja ekki ræða um aðlögun

Unnur Brá Konráðsdóttir.
Unnur Brá Konráðsdóttir.

Varaformaður þingflokks Vinstri grænna, Árni Þór Sigurðsson, hefur farið þess á leit við Unni Brá Konráðsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins, að hún breyti orðalagi í drögum að fyrirspurn á Alþingi og að þar verði rætt um „umsóknarferli“ en ekki „aðlögunarferli“ vegna aðildarumsóknar Íslands að ESB.

Unnur Brá lagði umsóknina fram 1. október síðastliðinn og kveðst hafa skilning á því að hún hafi ekki fengið brautargengi vegna brýnna mála eins og skuldavanda heimilanna. Nú sé hins vegar kominn tími á að þessi utandagskrárumræða komist á dagskrá.

Hún segir Árna Þór hafa farið þess leit við Ragnheiði Elínu Árnadóttur, þingflokksformann Sjálfstæðisflokksins, á fundi þingflokksformanna að orðalaginu yrði breytt, beiðni sem hún hafnað.

Hún er ósátt við að orðalagið „aðlögunarferli“ fái ekki að standa og telur ljóst að „erfitt sé að halda fram þeim rökum“ að ekki sé um aðlögunarferli að ræða.

„Ég held að þetta sé krafa Samfylkingarinnar,“ segir Unnur Brá og á við þá kröfu að orðalagið „aðlögunarferli“ verði ekki notað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert