Ekki víst að ákæra verði gefin út

Ríkislögreglustjórinn.
Ríkislögreglustjórinn. Árni Sæberg

Rannsókn á máli Viggós Þóris Þórissonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Verðbréfaþjónustu sparisjóðanna (VSP), er nú lokið. Samkvæmt Guðmundi Guðjónssyni, yfirlögregluþjóni hjá ríkislögreglustjóra, hefur enn ekki verið tekin ákvörðun um hvort ákæra verði gefin út á hendur Viggó. Guðmundur vildi ekki tjá sig um málið að öðru leyti.

Málið hefur verið í rannsókn í rúmlega þrjú og hálft ár, en Viggó sætti margra mánaða farbann vegna þessa.

Rannsókn hófst á málinu vegna gruns um stórfelld efnahagsbrot, sem voru talin felast  í útgáfu tilhæfulausrar ábyrgðaryfirlýsingar upp á 200 milljónir bandaríkjadala, rúma 22 milljarða króna. 


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert