Reglur um öryggi á sundstöðum hertar
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur undirritað reglugerð sem auka mun öryggi fólks á sundstöðum. Í reglugerðinni eru gerðar ítarlegri kröfur um öryggiskerfi og laugargæslu en gert var í eldri reglugerð. Þá eru auknar kröfur gerðar um öryggi barna og sérstakar kröfur gerðar til sundlaugavarða, kennara og þjálfara.
Í reglugerðinni segir meðal annars að við hönnun nýrra lauga og endurgerð eldri lauga skuli gera ráð fyrir nauðsynlegri lýsingu og öryggiskerfi svo sem myndavélum eða öðrum viðurkenndum búnaði sem tryggir öryggi undir vatnsyfirborði. Einnig er sundstöðum gert að hafa stöðuga laugargæslu meðan gestir eru í laug og verður laugarvörðum óheimilt að sinna öðrum störfum samhliða.
Börnum yngri en tíu ára verður óheimilt að fara í sund nema í fylgd með syndum einstaklingi sem er fimmtán ára eða eldri. Einnig verður gerð ríkari krafa til starfsfólks sundstaða. Þannig verður eigendum stundlauga gert skylt að sjá til þess að starfsfólk fái starfsþjálfun eigi sjaldnar en árlega, þar með talin þjálfun í sérhæfðri skyndihjálp.
Starfsmenn sem sinna laugargæslu, sundkennarar og sundþjálfarar verða að hafa náð átján ára aldri og standast hæfnispróf til að fá að sinna sínum störfum. Barnahópar skulu vera sérstaklega auðkenndir til að auðvelda ábyrgðarmanni hópa að fylgjast með hverju barni og þá mega sundkennarar, sundþjálfarar og leiðbeinendur ekki víkja frá laug fyrr en allir nemendur yngri en fimmtán ára eru farnir í búningsklefa.
Reglugerðin byggir á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir og tekur gildi 1. janúar 2011. Hún gildir um alla sund- og baðstaði sem almenningur hefur aðgang að, baðstofur og setlaugar en nær ekki til sundlauga og setlauga sem eingöngu eru ætlaðar til einkanota.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 15. júní 2011, Innlent Gerð verði úttekt á öryggi
- Föstudagur, 3. júní 2011, Innlent Stuðli að öryggi barna í sundlaugum
- Miðvikudagur, 9. febrúar 2011, Innlent Skoði að hætta sorpbrennslu
- Miðvikudagur, 23. júní 2010, Innlent Lengra gengið en annars staðar
- Þriðjudagur, 22. júní 2010, Innlent Hertar reglur vegna aukins styrks brennisteinsvetnis
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































