Tollgæslu meinað að skoða flugvél

Keflavíkurflugvöllur.
Keflavíkurflugvöllur. mbl.is/ÞÖK

Tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli var í fyrradag meinað að skoða flugvél, sem lenti á flugvellinum, fyrr en lögregla, sérsveitarmenn og dóms- og utanríkisráðuneytið höfðu skorist í leikinn. Þetta kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins.

Fram kom að flugvélin er í eigu einkafyrirtækis en sex manna áhöfn vélarinnar framvísaði pappírum frá bandaríska hernum.

Að sögn Ríkisútvarpsins kom ekki fram hvaða farmur var í vélinni. Mennirnir í flugvélinni hleyptu á endanum tollvörðum um borð en ekkert óeðlilegt var um borð. Vélin hélt síðan áfram til Þýskalands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert