Búið að ná rörinu upp

Landeyjahöfn hefur verið lokuð síðan þriðjudaginn 28. september.
Landeyjahöfn hefur verið lokuð síðan þriðjudaginn 28. september. Rax / Ragnar Axelsson

Tekist hefur að ná dælurörinu upp úr sjávarbotninum við Landeyjahöfn en þar hefur rörið verið í rúma viku. Rörið brotnaði þegar unnið var að dýpkun við hafnarmynni Landeyjahafnar.
Þetta kemur fram á vefnum Eyjafréttir. Þar segir að ekki hafi verið talið ráðlegt að opna höfnina fyrr en rörið væri komið upp. Ástæðan fyrir því að rörið brotnaði var að verið var að reyna að dæla í of mikilli ölduhæð. Sandur féll á rörið og við það brotnaði það af.
Landeyjahöfn hefur verið lokuð síðan þriðjudaginn 28. september eða í á fimmtu viku. Eyjafréttir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert