Er álvinnsla arðbærust?
Menn verða að velta fyrir sér hvort álvinnsla sé sá iðnaður sem skilar Íslendingum sem mestu fyrir jarðvarmaorku sína. Álvinnsla sé ágæt og noti mikið af orku en menn verði að spyrja sig hvort hægt sé að gera betur. Þetta sagði Michael Porter, prófessor við Harvard Business School á ráðstefnu um jarðvarmaorku í Háskólabíói sem nú stendur yfir.
Ísland eigi fyrir góð fyrirtæki í tölvu- og hugbúnaðargeiranum. Þannig gætu gagnaver verið hentugri orkufrekur iðnaður til þess að selja innlenda jarðvarmaorku. Vega þurfi heildarvirðisauka sem Íslendingar geti fengið úr þeim iðnaði sem þeir selja orku sína.
Sagði Porter að nú væri mikilvægt að menn byrjuðu að huga að framtíðinni og samkeppnisfærni landsins. Íslendingar þurfi að finna leiðir til að fá meiri virðisauka úr jarðvarmavinnslu sinni og að selja þekkingu sína og tækni erlendis, ekki aðeins orkuna. Í framtíðinni hefðu Íslendingar alla möguleika á að eiga og reka jarðvarmafyrirtæki um allan heim.
Sagði hann mikilvægt að huga að klösum í vinnslu jarðvarmaorku á Íslandi. Þar væri átt við öll þau fyrirtæki og stofnanir, allt frá orkufyrirtækjum til fjármálastofnanna, sem kæmi að vinnslu jarðvarmaorku. Jákvæð ytri áhrif alls klasans fyrir samfélagið væru mun meiri en hverrar einingar fyrir sig og því væri mikilvægt að hugsa um iðnaðinn út frá klösum.
Á þann hátt væri hægt að auka framleiðni, hraða þróun og hvetja til stofnunnar nýrra fyrirtækja í greininni.
Stjórnvöld ættu að styðja við bakið á jarðvarmaklasanum á Íslandi og fara að ráðleggingum hans. Þau ættu hins vegar ekki að niðurgreiða starfsemi fyrirtækjanna eða trufla samkeppni á annan hátt með að veita ákveðnum fyrirtækjum sérmeðferð. Einkafyrirtæki verði að vera í fararbroddi með stuðningi ríkisins.
Porter sagði Ísland eiga fjölda afar reyndra sérfræðinga á sviði jarðvarmaorku með góð sambönd erlendis. Það væri lykill að því að gera þekkingu á því sviði að útflutningsvöru. Þá sagði hann að það að fá fólk til að mennta sig á Íslandi í jarðvarmafræðum væri grundvallaratriði í markaðssetningu sérþekkingar Íslendinga í þeim efnum. Ísland bjóði upp á töluverðan fjölda menntastofnanna sem kenna á sviði jarðvarmaorku miðað við það sem gengur og gerist erlendis.
Bloggað um fréttina
-
-
Haraldur Haraldsson Er álvinnsla arðbærust? nei það er hún ekki,en hvað ættli ... -
Gunnlaugur Ásgeirsson Gagnaver(kæligeymslur) – sárafá störf. -
Gunnar Th. Gunnarsson Réttmæt spurning -
Ómar Ragnarsson Þetta megum við ekki heyra!
Innlent »
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 1. nóvember 2010, Innlent Tækifæri sem ekki má vanrækja
- Mánudagur, 1. nóvember 2010, Innlent Horfið til framtíðar
- Þriðjudagur, 28. júní 2011, Innlent Íslendingar of varkárir í jarðvarmamálum
- Þriðjudagur, 26. október 2010, Innlent Vilja samstarf við Íslendinga
- Fimmtudagur, 27. janúar 2011, Innlent Líkur á að álverið rísi í Helguvík minnka
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































