Ákærðir fyrir ofbeldi og líflátshótanir
Mál gegn þremur karlmönnum sem eru ákærðir fyrir að hafa ráðist á og hótað lögreglumönnum í Reykjavík í ágúst í fyrra og fyrir að ráðast á og hóta fjölskyldu í Reykjanesbæ í maí sl., var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness síðdegis í dag.
Einn mannanna er ákærður fyrir að hafa veist að tveimur lögreglumönnum sem voru með félaga hans, sem er á meðal hinna ákærðu, í tökum. Sá fyrrnefndi er ákærður fyrir að hafa slegið annan lögreglumanninn í andlitið og hinn í síðuna. Báðir mennirnir eru auk þess sakaðir um hóta lögreglumönnunum og fjölskyldum þeirra lífláti.
Þá eru tveir þeirra ákærðir fyrir að hafa ráðist á karlmann, eiginkonu hans og dóttur í Reykjanesbæ í maí sl. Varðar málið ætlaða skuld barnabarns hjónanna. Mennirnir eru sakaðir um að hafa hótað að brjótast inn á heimili fólksins. Segir í ákæru að einn þeirra hafi hótað manninum með hnífi. Báðir eru þeir ákærðir fyrir að hafa ráðist á fólkið, sparkað í þau og slegið. Jafnframt fyrir að hafa hótað manninum lífláti.
Verjendur mannanna fengu frest til 18. nóvember til að fara yfir gögn málsins og taka afstöðu til ákæranna, sem eru fimm. Einnig er um að ræða fíkniefnabrot á hjá einum þeirra og þá er annar ákærður fyrir tilraun til fjárkúgunar og vopnalagabrot.
Tveir mannanna eru þegar byrjaðir að afplána dóm sem þeir hlutu fyrir aðild að innbroti í hús við Barðaströnd á Seltjarnarnesi í maí í fyrra.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 1. febrúar 2011, Innlent Sprenging í friðsælu hverfi
- Miðvikudagur, 5. janúar 2011, Innlent Fjögurra daga réttarhöld
- Fimmtudagur, 23. september 2010, Innlent Hótuðu börnum lögreglumanna lífláti
- Mánudagur, 5. júlí 2010, Innlent Handrukkarar fyrir dóm
- Miðvikudagur, 8. júní 2011, Innlent Í gæsluvarðhaldi vegna hótana
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































