Allra úrræða leitað áður en til nauðungarsölu kemur


Íbúðalánasjóður leitar allra úrræða áður en til nauðungarsölu á íbúðarhúsnæði einstaklinga og fjölskyldna kemur. Ef viðskiptavinir Íbúðalánasjóðs hafa ekki greitt af lánum sínum  í 5 ½ mánuð eða lengur og hafa ekki leitað greiðsluerfiðleikaúrræða óskar Íbúðalánasjóður eftir  nauðungarsölu. Þetta kemur fram í tilkynningu sem sjóðurinn hefur sent frá sér vegna fjölmiðlaumræðu um nauðungarsölur að undanförnu.

Ekki óeðlilegt að ÍLS sé með flestar beiðnir um nauðungarsölu

„Ef fólk hefur samband við Íbúðalánasjóð er nauðungarsölu frestað og leitað allra leiða eins og að gera samning um greiðslu vanskila til að koma í veg fyrir nauðungarsölur.  Frestun á byrjun uppboðs er aldrei synjað ef fólk sækist eftir fresti og er nóg að hafa samband símleiðis.  Í mörgum tilfellum hefur fólk því miður ekki samband.

Einnig er mikilvægt að það komi fram að ÍLS er u.þ.b. með um 50-60%  af fasteignaveðlánum í landinu.  Því er ekki óeðlilegt að sjóðurinn sé beiðandi uppboðsmála í sama hlutfalli.

Enn fremur er vert að benda á að oftar en ekki er ÍLS á 1.veðrétti og þarf því að verja kröfu sína þar, ef síðari veðhafar fara fram á uppboð," segir í tilkynningu.

Hafa reynt að koma í veg fyrir uppboð og boðið upp á skuldbreytingu

Nokkuð hefur verið um að aðrar fjármálastofnanir geri ekki kröfur um uppboð eða mæti ekki til uppboða, þar sem það liggur ljóst fyrir að kröfur þeirra á síðari veðréttum séu utan markaðsverðs íbúða.  Fjármálastofnanir eru þá að afskrifa þær kröfur strax eftir uppboð án þess að koma að uppboðsmálunum sjálfum, þar sem lánveitingar þeirra hafa í raun enga veðstöðu lengur.

Að undanförnu  hefur Íbúðalánasjóður haft samband við uppboðsþola í þeim tilfellum þar sem Íbúðalánasjóður er eini gerðarbeiðandi í þeim tilgangi að koma í veg fyrir yfirvofandi uppboð.

Boðið er upp á skuldbreytingu vanskila samhliða frystingu og einnig samning um greiðslu vanskila.  Ef þessi úrræði duga ekki þá vísar Íbúðalánasjóður viðkomandi á umboðsmann skuldara, segir í tilkynningu.

Dugar að fá staðfestingu frá umboðsmanni um að leitað hafi verið aðstoðar

„Frá því að embætti umboðsmanns skuldara var sett á fót hefur ÍLS afturkallað uppboð eingöngu með því að fá staðfestingu umboðsmanns á því að einstaklingurinn hafi leitað til hans óháð niðurstöðu umboðsmanns.  Margir hafa nýtt sér þetta en ekki er komið í ljós hvort þetta er lausn fyrir skuldarana.  Í þeim tilfellum þar sem framhaldsuppboð fer fram samþykkir Íbúðalánasjóður í öllum tilfellum lengri samþykkisfrest og þá eins langan og sýslumaður er tilbúinn að veita.

Nokkuð er um að  nauðungarsölur eru afturkallaðar á samþykkisfresti, en samþykkisfrestur er sá viðbótartími sem gerðarþola er veittur til að ganga til samninga við kröfuhafa þannig að þeir falli frá uppboði.

Að lokum er rétt að benda á að í þeim tilvikum sem nauðungarsala fer fram er íbúum eignanna ávallt boðið að leigja íbúðina.  Um er að ræða leigusamninga til a.m.k. eins árs.  Fyrir liggur frumvarp félags- og tryggingamálaráðherra, sem heimilar Íbúðalánasjóði að selja þær íbúðir, sem sjóðurinn hefur eignast við nauðungarsölu, með kaupleiguréttarformi.  Fari svo að frumvarpið verði samþykkt á Alþingi mun núverandi leigjendum Íbúðalánasjóðs verða boðið að gera nýjan kaupréttarsamning í stað leigusamnings," segir í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Lagersalan Kauptúni 3 Garðabæ
Stálvaskar,verð 5000-stk.Opið mánud. til föstud.kl. 13-18 laugard.og sunnud. kl...
FÁÐU RÁÐGJAFA Í HEIMSÓKN - FRÍTT
BETRI REKSTUR, bókhald og rekstrarráðgjöf sími 77 50 200 og 519 7585 www.betrir...
Negld vetrardekk til sölu
Stærð: 195/65 R15, lítið notuð. Kosta 75 þús. ný, seljast á 40 þús. stgr. Upplýs...
Hjólavagnar
Glæsilegir hjólavagnar. Sterkir og liprir. Lág verð, heildsala - lagersala. www...
 
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Útboð nr. 20091
Tilboð - útboð
Útboð nr. 20091 Glerskipti...
Til sölu
Til sölu
Viðskiptatækifæri Sey...
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...