Áframhaldandi hvassviðri og ofankoma norðantil
Búast má við áframhaldandi hvassviðri og ofankomu norðantil á landinu í dag, að sögn Veðurstofunnar. Færð er víða slæm á þessum slóðum og er ferðfólk hvatt til að kynna sér færð og veðurútlit áður en lagt er af stað.
Norðanvindur, 13-18 m/s, verður um vestanvert landið annars mun hægari. Úrkomulaust sunnan- og austanlands annars snjókoma eða slydda og sumstaðar talsverð úrkoma norðvestantil. Áfram ofankoma norðantil í dag og lægir smám saman, víða norðan 10-15 síðdegis. Hiti verður um frostmark við ströndina en frost 1 til 10 stig til landsins.
Á höfuðborgarsvæðinu verður norðan 8-15. Lægir smám saman í dag. Austlægari átt á morgun og lítilsháttar él. Norðaustan 3-8 í kvöld. Hiti um og yfir frostmarki.
Á morgun, fimmtudag, gerir Veðurstofan ráð fyrir norðlægri átt, 5-13 m/s, og víða dálitlum éljum en skýjuðu með
köflum vestanlands. Frost víða 0 til 10 stig en frostlaust við
suðurströndina.
Um 550 km norðaustur af Dalatanga er víðáttumikil 970 mb lægð sem hreyfist norðaustur og grynnist heldur. 1000 km suðsuðaustur af HVarfi er 996 mb lægð sem mjakast norðaustur.
Klukkan þrjú í nótt var strekkings norðanátt á norðanverðu landinu, víða 13-18 m/s en 5-15 m/s annars staðar. Snjókoma var norðvestantil og á Norðausturlandi en annars skýjað með köflum eða bjartviðri. Kaldast var 6 stiga frost á Hellu en mildast 4 stiga hiti víða við ströndina.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 17. janúar 2011, Innlent Éljagangur víðast hvar
- Föstudagur, 24. desember 2010, Innlent Hvassviðri eða stormur syðst á landinu
- Fimmtudagur, 21. október 2010, Innlent Norðvestan hvassviðri og él norðaustanlands
- Mánudagur, 1. nóvember 2010, Innlent Austan hvassviðri með morgninum
- Miðvikudagur, 30. nóvember 2011, Innlent Lægir smám saman og dregur úr ofankomu
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































