Fyrirtæki stofnuð um starfsemi WikiLeaks
Kristinn Hrafnsson blaðamaður hefur stofnað fyrirtækið Sunshine Press Productions ehf. hér á landi ásamt Inga Ragnari Ingasyni kvikmyndagerðarmanni og Julian Assange, stjórnanda uppljóstrunarvefjarins WikiLeaks. Fyrirtækið er eitt af nokkrum í heiminum sem tengjast starfsemi vefsíðunnar.
Kristinn segir í samtali við mbl.is að félagið hafi verið stofnað í síðasta mánuði og engin eiginleg starfsemi sé hafin. Vísað er á það á vef WikiLeaks.
Hann segir jafnframt að verið sé að stofna svipað fyrirtæki í Svíþjóð og nú þegar séu fyrirtæki starfandi í Frakklandi og í Ástralíu, en Sunshine Press í Ástralíu er formlegur rekstraraðili Wikileaks.
Kristinn vill lítið segja um áform fyrirtækisins hér á landi. Hins vegar bendir hann á að starfsemin í kringum WikiLeaks vefinn sé smátt og smátt að þenjast út og að skipulagið sé að batna. Flestir muni þó áfram starfa í sjálfboðavinnu fyrir vefinn.
Tekur á sig nýja mynd
„Það kann að að koma til þess að Wikileaks fari út í meiri vinnslu á grundvelli þess efnis sem er að berast á vefinn. Það er hugsunin,“ segir Kristinn. Aðspurður segir hann fjölmörg spennandi verkefni framundan án þess að vilja tjá sig nánar um þau.
„Þetta er að taka á sig nýja mynd í þessu umbreytingaskeiði sem er að verða á samtökum sem eru að eðlisbreytast í samræmi við þau verkefni sem þau eru að taka að sér og vinna að.“
Spurður um viðbrögð, bæði almennings og fjölmiðla, við birtingu skjala um starfsemi Bandaríkjahers í Írak segir hann: „Þetta hefur gengið vonum framar. Menn eru aðeins að venjast þessu fyrirbæri og fá aukinn skilning á því hvaða hugmyndir liggja þarna að baki. Ólíkt sem gerðist í tengslum við birtingu skjalanna frá Afganistan í enda júlí, þá er meiri fókus núna á efnisatriði þess sem verið er að leka og koma á framfæri, heldur en hinu að gera sér mat úr lekanum sjálfum. Eða Wikileaks eða stofnandanum og ritstjóranum Julian. Það er ánægjuefni,“ segir Kristinn Hrafnsson.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 26. janúar 2011, Innlent WikiLeaks ekki brotið lög
- Þriðjudagur, 28. desember 2010, Innlent Segir ummæli þingmanns rakalausan þvætting
- Mánudagur, 7. mars 2011, Innlent Vill ekki leiða WikiLeaks
- Mánudagur, 2. ágúst 2010, Innlent Ómögulegt að loka síðunni
- Föstudagur, 26. mars 2010, Innlent Segjast sæta eftirliti
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































