Tugir skattamála í rannsókn
Skattayfirvöld eru með hátt í hundrað mál í vinnslu vegna skattálagningar á söluréttarsamningum. Málin tengjast að minnsta kosti tveimur bönkum og þremur fyrirtækjum. Fyrr í vikunni dæmdi Héraðsdómur Reykjavíkur fyrrum yfirmann lögfræðisviðs Kaupþings til þess að greiða tekjuskatt af hagnaði af kaupum á hlutabréfum í bankanum.
Í Viðskiptablaðinu í dag kemur fram að tugir mála eru til rannsóknar hjá ríkisskattstjóra vegna skattálagningar á söluréttarsamningum sem fyrirtæki gerðu við starfsmenn sína. Málin snerta meðal annars samninga sem gerðir voru við starfsmenn Kaupþings, Glitnis, Atorku, Actavis og Nýherja, samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins.
Talið rangt fram Að mati skattayfirvalda var rangt farið með hagnað sem hlaust af slíkum samningum. Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri segir að embætti hans telji að skattstofn hafi átt að vera hærri. Um sé að ræða launatekjur en ekki fjármagnstekjur líkt og þeir sem höfðu slíka samninga töldu fram.
„Stundum gerist það að menn finna upp aðferðir og telja sig með þeim geta komist undan skattlagningu. Söluréttarsamningar og hvernig þeir voru taldir fram er eitt af því sem skattayfirvöld hafa ekki verið sammála um.,“ segir Skúli Eggert í samtali við Viðskiptablaðið í dag. Hann staðfestir að rannsóknin beinist ekki einungis að starfsmönnum fjármálafyrirtækja heldur einnig annarra fyrirtækja.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 28. júlí 2011, Innlent Fréttatíminn: Vínbirgðir kyrrsettar
- Mánudagur, 1. nóvember 2010, Innlent Greiði tekjuskatt af sölurétti
- Föstudagur, 7. maí 2010, Innlent Slóð liggur til Lúxemborgar
- Laugardagur, 19. desember 2009, Innlent Gaumur greiddi tekjuskatt af söluhagnaði
- Fimmtudagur, 18. mars 2010, Innlent Bankarnir veittu ekki upplýsingar og skiluðu ekki alltaf staðgreiðslu
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































