„Án hafta hefði kreppan orðið dýpri"
Franek Rozwadowski (t.h.) og Mark Flanagan, fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins gagnvart Íslandi. Rax / Ragnar Axelsson
Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að samstarfið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn sé forsenda þess að íslensk stjórnvöld hafi getað beitt gjaldeyrishöftum án þess að ganga gegn alþjóðlegum skuldbindingum. Án gjaldeyrishaftanna sé ljóst að krónan hefði veikst meira en raun bar vitni, með meðfylgjandi hækkun verðbólgu með auknum skuldum heimila og fyrirtækja.
Þetta kemur fram í pistli sem hann ritar á Pressuna.
Þar segir hann að við hrun bankakerfisins varð greiðslufall yfirvofandi hjá Íslandi. Ekki
voru til fjármunir til að standa skil á háum erlendum skuldbindingum og
samstarf við erlend ríki var lífsnauðsynlegt ef endurreisn ætti að eiga
sér stað. Erlend ríki vildu hins vegar ekki aðstoða Ísland án þess að
AGS kæmi þar að.
„Greiðslufall Íslands hefði getað þýtt áralöng
útskúfun af erlendum fjármálamörkuðum en án erlends fjármagns þarf
íslenska þjóðin að standa undir öllum framkvæmdum með innlendum
sparnaði. Við þær aðstæður er hætt við að fjárfesting verði of lág.
Hagvöxtur til skemmri og lengri tíma léti þá á sér standa með enn verri
stöðu heimila og fyrirtækja," skrifar Magnús Orri.
Hann segir að án aðkomu AGS hefði kreppan orðið dýpri en raun bar vitni.
Skattar hefðu þurft að hækka meira og skera hefði þurft meira niður. Lán
í tengslum við efnahagsáætlunina og trúverðugleikinn sem áætluninni
fylgir kemur í veg fyrir að ríkið þurfi að safna peningum til þess að
greiða upp öll lán þegar þau falla á gjalddaga.
„Það er að algert
glapræði að víkja frá þeirri efnahagsstefnu sem mörkuð hefur verið í
samstarfi við AGS. Vissulega má endurskoða einstaka hugmyndir um
niðurskurð í fjárlagafrumvarpi, en rammi þeirra þarf að halda," skrifar þingmaðurinn í pistli á Pressunni.
Bloggað um fréttina
-
Ómar Geirsson Loksins afhjúpaði heimskan sig. -
Björn Birgisson Magnús Orri Schram á framabraut?
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 14. október 2010, Innlent Sameiginlegt verkefni banka og stjórnvalda
- Þriðjudagur, 20. október 2009, Innlent Krónuskuld í gjaldeyrisskuld við AGS
- Föstudagur, 26. ágúst 2011, Innlent Samstarfinu við AGS lokið
- Föstudagur, 2. september 2011, Innlent Skuldar þjóðinni skýr svör
- Fimmtudagur, 21. janúar 2010, Innlent Icesave skaði ekki alþjóðleg tengsl
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































