Sækja um leyfi til veiða á gulldeplu

Gulldepla.
Gulldepla.

HB Grandi hefur sent sjávarútvegsráðuneytinu ósk um leyfi til tilraunaveiða á gulldeplu og ef leyfið fæst þá gætu uppsjávarveiðiskip félagsins farið til veiða strax í næstu viku.

Vilhjálmur Vilhjálmsson, deildarstjóri uppsjávarsviðs, telur að hægt verði að ná árangri á veiðunum en reynsla undanfarinna tveggja ára hefur leitt í ljós að sérhönnuð flottroll frá Hampiðjunni hafa skilað mun meiri afla en þau flottroll sem fyrst voru reynd. Þetta kemur fram á vef HB Granda.

Sú ákvörðun sjávarútvegsráðherra að heimila veiðar á 40 þúsund tonnum af íslenskri sumargotssíld á þessari vertíð þýðir að 25 þúsund tonnum hefur nú verið bætt við byrjunarkvótann sem var upp á 15 þúsund tonn. Af þessari viðbót koma tæplega 2.800 tonn í hlut skipa HB Granda. Nokkur bið verður þó á því að farið verði til síldveiða að nýju.

Ástæðan er sú að mikil óvissa var um það hvort aukið yrði við kvótann og því var ákveðið að ráðast í smávægileg viðhaldsverk í fiskiðjuverinu og fiskmjölsverksmiðjunni á Vopnafirði. Stefnt er að því að vinnsla hefjist að nýju í frystihúsinu 22. nóvember nk. þannig að síldveiðar skipa HB Granda ættu að geta hafist að nýju eftir u.þ.b. tvær vikur.

Að sögn Vilhjálms eru fyrstu vísbendingar um ástand loðnustofnsins eftir rannsóknaleiðangur Hafrannsóknastofnunar á dögunum vissulega uppörvandi. Vonandi leiða niðurstöður leiðangursins til þess að hægt verði að hefja loðnuveiðar fyrir áramót. Það skýrist vonandi fyrir lok næstu viku.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert