Staðfestir visku fjöldans
Jafnrétti, lýðræði, mannréttindi, virðing og ábyrgð er meðal helstu gilda sem til umræðu voru í morgun. Þjóðfundur
„Aðferðin sem er notuð á þessum fundi er sú að laða fram visku fjöldans. Í raun og veru staðfestir þessi þjóðfundur visku síðasta þjóðfundar með mjög afgerandi hætti, kannski meira en maður bjóst við,“ segir Gunnar Hersveinn.
Gunnar er höfundur bókarinnar Þjóðgildin, sem fjallar um þjóðfundinn sem haldinn var í nóvember í fyrra og þau gildi sem þar voru efst á blaði.
Gunnar segir þau gildi sem þátttakendur á þjóðfundi um nýja stjórnarskrá, sem fram fór í dag í Laugardalshöll, séu í meginatriðum þau sömu og fundarmenn komust að samkomulagi um í fyrra.
„Á fyrri fundinum var spurt: Hvaða gildi finnst þér skipta mestu máli? Þannig að fólk leitaði í eigin barm að þeim gildum sem það vildi efla á Íslandi, og fannst skorta á. Þess vegna var kannski heiðarleiki efstur á blaði þá, af því fólk fannst skorta heiðarleika,“ segir Gunnar
Þau gildi sem samkomulag náðist um á fundinum 2009 voru jafnrétti, lýðræði, réttlæti, virðing, heiðarleiki, frelsi, ábyrgð og mannréttindi. Þessi gildi eru keimlík þeim sem fundurinn í dag hefur valið sem grundvallargildi, sem hafa ber til hliðsjónar við endurskoðun stjórnarskrárinnar.
„Núna er náttúrulega hugur fundarmanna á stjórnarskrá. Þessi fundur ætti ekki að vera eins almennur. Þegar spurningin er borin upp er fólk að hugsa meira um leiðarljós fyrir nýja stjórnarskrá.
Það má segja að gildin sem eru valin núna, hafi öll verið efst á blaði á síðasta fundi. Mannréttindi voru líka mjög ofarlega á síðasta fundi. Það er eins og þetta segi okkur að þegar svona stór hópur kemur saman og reynir að finna gildi, þá virðist það koma fram að þessi gildi eru dýrmætust.“
- En er ekki hætt við því, þegar svona margir koma saman, að útkoman verði einhvers konar lægsti samnefnari skoðana þeirra sem þátt taka?
„Það má segja að þegar spurt er bara um orð, hugsjónir eða grunngildi, þá sé mjög auðvelt að vera sammála um orðin, nafnið. En síðan tekur við samtalið um aðferð. Hvernig eigum við að festa ábyrgð í sessi á Íslandi, til dæmis? Hvaða aðferð eigum við að nota, svo fólk komi sér ekki undan ábyrgðinni? Þá flækist málið.“
Bloggað um fréttina
-
Ómar Geirsson Órædd aðför að landsbyggðinni. -
Þórður Guðmundsson Þetta er ágætt -
Haraldur Haraldsson Staðfestir visku fjöldans/Eða kannski hitt þá heldur,alls ekki,bara Bruðl!!!!
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 13. ágúst 2010, Innlent Þjóðfundur um stjórnarskrá í nóvember
- Þriðjudagur, 1. febrúar 2011, Innlent Orð látin vaða eins og púðurskot
- Miðvikudagur, 11. nóvember 2009, Innlent Þjóðfundur um framtíðarsýn Íslendinga
- Mánudagur, 11. október 2010, Innlent Strákagöng lokuð í nótt
- Sunnudagur, 8. nóvember 2009, Innlent Þjóðfundurinn vekur athygli
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































