Biðlistar eftir hjúkrunarrýmum á Akureyri
Á fundi fulltrúa starfsmanna, aðstandenda, Félags eldri borgara og stéttarfélaga í gær var ákveðið að útbúa undirskriftalista þar sem niðurskurði á hjúkrunarrýmum á Öldrunarheimilum Akureyrar verður mótmælt. Framkvæmdastjóri öldrunarheimila Akureyrar segir að þegar séu byrjaðir að myndast biðlistar eftir hjúkrunarrýmum á Akureyri.
„Í frumvarpi ríkisstjórnarinnar til fjárlaga fyrir árið 2011 er boðaður niðurskurður um 7 hjúkrunarrými á Öldrunarheimilum Akureyrar, auk þess eru 3 hjúkrunarrými skorin niður á þessu ári. Samanlagt er því um að ræða niðurskurð á 10 hjúkrunarrýmum á Öldrunarheimilum Akureyrar.
Þessi niðurskurður er ekki síst alvarlegur í ljósi þess að hjúkrunarrýmum hefur nú þegar fækkað gríðarlega á Akureyri. Sjúkrahúsið á Akureyri (FSA) hefur frá árinu 2005 fækkað hjúkrunarrýmum úr 30 í 7, þar af hefur 5 hjúkrunarrýmum verið lokað á þessu ári. Óvíst er hversu lengi FSA heldur opnum þeim 7 rýmum sem eftir eru. Það er því grafalvarlegt að ráðuneytið boðar nú fækkun um 10 hjúkrunarrými til viðbótar á Akureyri. Verði þessi niðurskurður að veruleika mun hjúkrunarrýmum á Akureyri og í nágrenni fækka um 33 á aðeins 5 árum. Ef FSA lokar þeim rýmum sem þar eru eftir, þá mun hjúkrunarrýmum á svæðinu fækka um 40 eða 20% á örfáum árum, úr 200 í 160.
Biðlisti eftir hjúkrunarrýmum hefur þegar myndast á Akureyri og frekari niðurskurður mun leiða af sér ófremdarástand. Nú eru 18 einstaklingar á biðlista eftir hjúkrunarrýmum og 11 á biðlista eftir dvalarrýmum. Auk þess eru 28 einstaklingar á biðlista eftir skammtímadvöl sem er í hluta af leyfðum hjúkrunarrýmum.
Boðaður niðurskurður á hjúkrunarrýmum mun hafa alvarlega keðjuverkun í för með sér: Biðlistar eftir hjúkrunarrýmum munu lengjast, álag mun aukast í heimaþjónustu, heimahjúkrun, í skammtímadvöl og jafnvel á FSA. Álag mun einnig aukast á aðstandendur sem sinna skyldmennum sínum í heimahúsum – oft langt umfram getu.
Ef staðið verður við boðaðan niðurskurð á hjúkrunarrýmum er ljóst að loka
þarf 1 deild á öldrunarheimilum Akureyrar og segja starfsfólki upp störfum," segir í tilkynningu.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 8. nóvember 2010, Innlent Alvarleg keðjuverkun vegna niðurskurðar
- Miðvikudagur, 29. desember 2010, Innlent Uppsagnir á Húsavík
- Mánudagur, 21. febrúar 2011, Innlent Fordæma aðför að öldruðum
- Fimmtudagur, 26. nóvember 2009, Innlent L-listinn boðar framboð
- Miðvikudagur, 3. nóvember 2010, Innlent Ráðherra treysti sér ekki í ófærðina
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































