Vottar Jehóva hlýta barnaverndarlögum
Regluverkið sem Vottar Jehóva á Íslandi hafa sett sér um viðbrögð við kynferðisbrotamálum innan safnaðarins eru í samræmi við barnaverndarlög, að sögn Braga Guðbrandssonar forstöðumanns Barnaverndarstofu.
Í kjölfar fréttaflutnings í fjölmiðlum síðustu daga um kynferðisbrot innan safnaðarins óskaði Bragi eftir fundi með forystumönnum Votta Jehóva til þess að fara yfir þessi mál. „Ég taldi rétt af þessu tilefni að ganga úr skugga um það hvað verklagsreglur, ef einhverjar, væru í gildi hjá þessu trúfélagi," segir Bragi. Niðurstaðan er að þessi mál virðist vera í góðum farvegi hjá vottum Jehóva.
„Þeir gáfu út reglur fyrir rúmlega 10 árum síðan sem eru nokkuð ítarlegar og sem hefur verið dreift til safnaða í landinu.Í þessum verklagsreglum er fjallað um og vísað í ákvæði í barnaverndarlögum sem varða tilkynningaskyldu og það brýnt fyrir safnaðardeildum að bregðast við í samræmi við ákvæði laganna um tilkynningaskyldu til barnaverndaryfirvalda, ef mál af þessu tagi kæmu upp."
Braga var svo tjáð að á þessum 10 árum hefði eitt mál komið upp innan safnaðarins og ferli þess máls lýst fyrir honum. Bragi segir að verklagsferlið sé í raun mjög svipað þeim starfsreglum sem gildi í skólum landsins, þar sem lögð er áhersla á að skólastjóri komi að því. Í tilfelli Votta Jehóva fara mál úr deildum safnaðarins í gegnum „höfuðstöðvarnar" í Reykjavík og þaðan til barnaverndaryfirvalda.
Barnaverndarstofa leggur að sögn Braga áherslu á það að stofnanir þar sem börn eru, s.s. á sviði heilbrigðisþjónustu og mennta móti sér verklag sem tryggi góða og rétta málsmeðferð þegar mál af þessu tagi koma upp. „Og það skiptir auðvitað miklu máli að trúfélög setji sér slíkar verklagsreglur líka og þessi fundur leiddi það í ljós að það hefur verið gert innan Votta Jehóva."
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 9. nóvember 2010, Innlent „Hylma ekki yfir kynferðislega misnotkun“
- Föstudagur, 25. júní 2010, Innlent Götusmiðjan íhugar málaferli
- Föstudagur, 12. nóvember 2010, Innlent „Óeðlilegt að birta nöfn barna“
- Laugardagur, 26. júní 2010, Innlent Harmar atburðinn
- Þriðjudagur, 13. júlí 2010, Innlent Barnaverndaryfirvöld fóru að lögum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































