10,4% í vanskilum við banka
Vanskil heimila hafa aukist hjá öllum lánastofnunum og er staðan nú sú að 10,4% hafa verið í vanskilum við viðskiptabanka í meira en 90 daga, 6,4% hjá Íbúðalánasjóði og 4% hjá lífeyrissjóðum. Vanskil við Íbúðalánasjóð eru þó minni en þau voru á árunum 1992-1997.
Þetta kemur fram í skýrslu sérfræðingahóps um skuldavanda heimilanna.
Í skýrslunni er bent á að kaupmáttur ráðstöfunartekna heimilanna hafi fallið um 15,5% á árinu 2009 og spár Seðlabankans bendi til að kaupmáttur muni lækka um 6,4% á þessu ári.
Heimilin hafi haldið uppi einkaneyslu með því að draga á sparnað, annar vegar með mikilli úttekt séreignalífeyrissparnaðar eða um 40 milljarða og hins vegar hafi innlán heimila í innlánsstofnunum minnkað um 50 milljarða á þessu ári. „Í ljósi mikils kaupmáttarhraps og minni sparnaðar heimilanna blasir þó við að tölur um vanskil vitna um tölvuvert mikinn greiðsluvilja,“ segir í skýrslunni. Margvíslegar aðgerðir stjórnvalda og fjármálastofnana hafi vafalítið haft þau áhrif að draga úr vanskilum.
Í skýrslunni er einnig bent á að samkvæmt lífskjarakönnun Hagstofunnar hafi hlutfallslega fleiri heimili verið í vanskilum með lán eða leigu árið 2004 en árið 2009. Hlutfall í vanskilum minnki eftir því sem tekjur aukast. Í tekjuhæsta fimmtungnum séu þannig hlutfallslega mun færri í vanskilum en árið 2004. Jafnframt minnki vanskilin eftir því sem tekjur aukist. Í tekjulægsta hópnum hafi hins vegar þeim fjölgað umtalsvert sem eru í vanskilum.
„Niðurstöðutölur Hagstofu um að 7% heimila hafi verið í vanskilum með lán eða leigu á árinu 2009 ríma ekki illa við fyrrnefndar tölur fjármálastofnana um vanskil fasteignalána. Þá er sundurliðun Hagstofu á vanskilum eftir tekjuhópum einnig mikilsverð vísbending um hvar vandinn liggur. Þessar niðurstöður ramma verkefnið inn að því leyti til að skilvirkar aðgerðir til lausnar á skulda- og greiðsluvanda heimila vegna fasteignalána verða að ná til þessa hóps og kom í veg fyrir að hann fari stækkandi,“ segir í skýrslunni.
Bloggað um fréttina
-
Hálfdán Kristjánsson Hafa menn ekki gleymt einhverju í samanburðinum -
Gunnar Heiðarsson Graf alvarleg staða!! -
Sigurður Haraldsson Þessi frétt.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 10. nóvember 2010, Innlent Vaxtabótahækkun árangursríkust
- Miðvikudagur, 10. nóvember 2010, Innlent 10.700 heimili í greiðsluvanda
- Föstudagur, 25. mars 2011, Innlent Fjórðungur einstæðra foreldra í vanskilum
- Þriðjudagur, 31. maí 2011, Innlent 25 þúsund á vanskilaskrá
- Föstudagur, 28. október 2011, Innlent Bjóst við hærra hlutfalli
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































