BHM harmar erfiða stöðu í samráðsferli
Bandalag háskólamanna harmar að samráðsferli flutnings málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga skuli komið í erfiða stöðu og að Samband íslenskra sveitarfélaga hafi klofið sig úr samstarfi. Þess er auk þess krafist að vinna nefndar á vegum félagsmálaráðuneytis haldi áfram.
Um er að ræða samráðshóp á vegum félagsmálaráðuneytisins þar sem stéttarfélögin og heildarsamtök þeirra, ásamt fulltrúum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg, hafa unnið að réttinda- og hagsmunamálum starfsmanna. því þó flutningur málaflokksins snerti helst fatlað fólk og aðstandendur þeirra hefur hann einnig mikil ahrif á starfsvettvang um 1.500 manna.
Í tilkynningu frá BHM segir að fram til loka síðasta árs hafi starf nefndarinnar gengið vel.Þegar í ljós að kom í lok janúar sl. að ágreiningur var á milli aðila um grundvallarþætti á borð við félagafrelsi, starfsöryggi og að starfsmenn nytu sömu réttinda og opinberir starfsmenn höfðu árin 1990 og 1996 við yfirflutning á heilbrigðisþjónustu og grunnskólanum, sigldi samstarfið í strand.
Sveitarfélögin haga starfsmannamálum
Ekki var boðað til fundar í tíu mánuði eða fyrr en 7. október. Síðan þá hefur einn annar fundur verið haldinn en á honum lýsti fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga, Karl Björnsson framkvæmdastjóri, því yfir að ekki væri ástæða til að nefndin starfaði áfram, þar sem hún væri fallin á tíma.
Karl sagði einnig að af því leiddi að sveitarfélögin myndu því haga starfsmannamálum með þeim hætti sem þau kysu sjálf. Þessu til áréttingar dreifði Karl bæklingi til fundarmanna um væntanlegt starfsumhverfi starfsmanna.
BHM lýsir í tilkynningu vanþóknun sinni á þessari framkomu og krefst þess skilyrðislaust að vinna nefndarinnar til tryggingar á réttindum starfsmanna haldi áfram. Þess er krafist að fullt tillit verði tekið til sjónarmiða stéttarfélaganna enda samræmast þau áður viðhöfðum vinnubrögðum hins opinbera þegar málefni hafa flust milli stjórnsýslustiga. Annað sé mismunun sem verði ekki liðin.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 12. mars 2010, Innlent Gagnrýna inngrip hins opinbera
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Ræddu um stöðugleikasáttmálann
- Mánudagur, 17. október 2011, Innlent Vill eingreiðslu ofan á fæðingarorlof
- Þriðjudagur, 22. febrúar 2011, Innlent Ákvörðun kjararáðs skiljanleg
- Þriðjudagur, 31. ágúst 2010, Innlent Ósátt við fjárfestingar sjóðs
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































