„Nú er mælirinn fullur“

Breiðavík við Patreksfjörð. stækka

Breiðavík við Patreksfjörð. mbl.is/Ómar

Keran Ólafsson, sauðfjárbóndi og hótelstjóri í Breiðavík, segir ákvörðun Póst og fjarskiptastofnunar um að hætta að aka pósti til Breiðavíkur vera gríðarleg vonbrigði.

„Þetta væri kannski skiljanlegt ef hér væri lítið bú en það er ekki tilfellið. Við rekum Hótel Breiðavík og í sumar voru hér 12 þúsund gestir á svæðinu. Við tökum við hundruðum póstkorta á mánuði og sendum með póstinum en þessu fylgir einnig töluverð sala á frímerkjum. Við búum hérna allt árið um kring og erum með stórt sauðfjárbú eða um 650 veturfóðraðar ær, auk þess rekum við hér rútufyrirtæki sem teygir anga sína alla leið til Ísafjarðar. Þá sjáum við einnig um vitann á Látrabjargi en þar er ég vitavörður,“ segir Keran sem telur umsvif sín í Breiðavík því meiri en gengur og gerist á venjulegum sveitaheimilum.

„Íslandspóstur fullyrðir að þetta sé dýrasta póstleið landsins en tekur þó fram að kostnaðurinn nemi 340 þúsund krónum árlega. En þegar við tökum bara frímerkjasöluna og póstkortin sem við sendum frá okkur er leiðin ekki langt frá því að vera sjálfbær. Við notum póstinn líka meira en venjuleg heimili. Við tökum til að mynda á móti varahlutum í rúturnar og landbúnaðartæki. Hótelið er með 40 rúmum auk veitingasölu og við höfum t.d. notað póstinn til þess að fá gos og önnur drykkjaföng frá birgjum,“ segir Keran.

Keran segir úrskurð Póst og fjarskiptastofnunnar vera kornið sem fyllir mælinn hvað varðar lélega þjónustu sem hið opinbera innir af hendi í Breiðavík.

„Við erum til að mynda ekki með GSM samband hér á svæðinu. Stutt er síðan Fjarskiptastofnun barði sér á brjóst og ætlaði að háhraðanettengja alla sveitabæi landsins. Ekkert hefur bólað á því þótt að umsókn frá okkur hafi legið inn hjá stofnuninni í þrjú ár. Við komum okkur sjálf upp nettengingu á eigin kostnað og höldum þeirri tengingu alfarið uppi. Hér næst ekki heldur 3G þó svo að Fjarskiptastofnun sýni með bláum lit á kortum að allt landið sé tengt. Það stenst einfaldlega ekki því þrátt fyrir bláa litin á kortinu er hér engin tenging. Þá náum við ekki sjónvarpinu og höfum aldrei gert. Engu að síður greiðum við nefskattinn og aðra skatta eins og aðrir í landinu þó ekki náist hér sjónvarp og ekki sé hægt að fær okkur póst.“ segir Keran.

www.bb.is

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Lögreglan við eftirlit.

Fimm teknir fyrir of hraðan akstur við Borgarnes

Í gær, 23:30 Fimm voru teknir fyrir að aka of greitt í grennd við Borgarnes í dag. Að öðru leyti virðist þessi fyrsta ferðahelgi sumarsins hafa gengið vel í umferðinni víðast hvar um landið. Meira »
Kirkjugestir voru teknir til altaris.

Mótorhjólamenn fjölmenntu í messu

Í gær, 21:56 Það var talsvert annað yfirbragð yfir messu í Digraneskirkju í kvöld en venjulega, en þar fór fram svokölluð mótorhjólamessa. Í kirkjunni voru leðurklæddir mótorhjólamenn og utan við kirkjuna var röð glæsilegra mótorhjóla. Meira »

Bjartviðri víðast hvar

04:35 Breytileg átt, víða 3-8 m/s, verður á landinu í dag og bjartviðri, en skýjað og sums staðar þokuloft fram eftir morgni, einkum vestantil. Hæg austlæg eða breytileg átt undir hádegi og yfirleitt léttskýjað. Hiti 8 til 20 stig, hlýjast í innsveitum. Meira »

Hrapaði ofan í gil

Slysið varð skammt frá Seljalandsfossi.
Í gær, 19:31 Bresk kona stórslasaðist þegar hún hrapaði ofan í gil stutt frá tjaldstæðinu við Hamragarða, skammt innan við Seljalandsfoss við Þórsmerkurveg. Meira »

Sé ekki í samkeppni við þingið

Þóra Arnórsdóttir og maður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.
Í gær, 18:09 Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi segir að forseti sem rekur eigin stjórnmálastefnu í samkeppni við þjóðkjörið þing geti ekki ræktað sitt meginhlutverk sem sé að vera sameiningarafl. Meira »

Eldhúsdagsumræðu á Alþingi

Í gær, 21:07 Eldhúsdagsumræður fara fram á Alþingi annað kvöld. Samkvæmt starfsáætlun þingsins á að fresta fundum Alþingis á fimmtudag, en talið er ólíklegt að sú áætlun standist. Meira »

Konan fannst látin

Í gær, 19:11 Lettneska konan sem leitað hefur verið að við Meðalfellsvatn fannst látin síðdegis í dag. Hennar hafði verið saknað frá 13. maí. Flest bendir til að talsvert sé síðan hún lést. Meira »

Kiwanismenn máluðu vitann

Kiwanismaðurinn Björn Viðar mundar rúlluna af fagmennsku.
Í gær, 18:08 Félagar í Kiwansiklúbbnum Skjálfanda á Húsavík notuðu veðurblíðuna í dag til að mála vitann á Húsavíkurhöfða en hann var farinn að láta á sjá. Meira »

Leitarmenn kallaðir til baka

Ligitu Solomenceva
Í gær, 18:03 Búið er að kalla til baka þá sem leitað hafa að lettnesku konunni við Meðalfellsvatn í dag. Ekki hafa borist staðfestar fréttir af örlögum konunnar. Meira »

Þröstur og Bragi jafnir

Í gær, 17:27 Jafntefli varð í fjórðu og síðustu skák úrslitaeinvígis Braga Þorfinnssonar (2449) og Þrastar Þórhallssonar (2424) um Íslandsmeistaratitilinn í dag en teflt var í Stúkunni við Kópavogsvelli. Meira »

Bensíngjöfin festist niðri

Í gær, 17:46 Bifreið skemmdist þegar henni var ekið stjórnlaust inn í trjágróður við Hvassaleiti í Reykjavík um kl. 13:30 í dag.  Meira »

Stöðvaður eftir ofsaakstur

Í gær, 17:23 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í dag ofsaakstur fólksbíls sem ók á miklum hraða eftir Miklubraut. Hann ók m.a. utan í bíl. Ökumaður grunaður um ölvun og vímuefnaneyslu. Meira »

Alsírsku drengirnir áfrýja

Í gær, 16:25 Alsírsku drengirnir sem sakfelldir voru í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum við komu til Íslands hafa áfrýjað dómnum til hæstaréttar. Héraðsdómur dæmdi þá til 30 daga fangelsisvistar þann 30. apríl síðastliðinn. Meira »

Ákærður fyrir að stinga mann

Guðgeir Guðmundsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir árásina.
Í gær, 14:26 Ákæra gegn Guðgeiri Guðmundssyni, sem sakaður er um að hafa 5. mars. sl. stungið tvo starfsmenn lögmannsstofnunnar Lagastoða, verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Annar mannanna særðist lífshættulega og lá í marga daga á gjörgæsludeild. Meira »

Klára kvótamálin í vikunni

Atvinnuveganefnd stefnir að því að klára umfjöllun um frumvarp um veiðigjald í vikunni.
Í gær, 14:05 Boðaður hefur verið fundur í atvinnuveganefnd Alþingis á morgun til að ræða um kvótafrumvörpin. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður nefndarinnar, segir að frumvörpin verði ekki afgreidd úr nefndinni á morgun, en það verði gert síðar í vikunni. Meira »

Listflug við Reykjavíkurflugvöll

Á sýningunni var hægt að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum.
Í gær, 15:54 Fjöldi fólks hefur í dag fylgst með flugvélum sýna listflug á Reykjavíkurflugvelli, en Flugmálafélags Íslands stóð fyrir flugsýningu þar sem hægt var að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum. Meira »

Landsbjörg leitar enn að Ligitu

Ligitu Solomenceva
Í gær, 14:22 Landsbjörg leitar í dag að hinni 42 ára Ligitu Solomenceva frá Lettlandi. En til hennar hefur ekkert spurst síðan 13 maí. Hún var í sumarbústað við Meðalfellsvatn og var ein á ferð. Meira »

Hreint hjarta besta myndin

Grímur Hákonarson.
Í gær, 13:34 Heimildamynd Gríms Hákonarsonar Hreint hjarta var valinn besta heimildamyndin á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda sem haldin var í sjötta sinn á Patreksfirði um helgina. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BIFREIÐASTILLINGAR NICOLAI
NICOLAI bifreiðastillingar, Faxafeni 12, sími 588 2455. Véla- og hjólastillingar...
ORLOFSÍBÚÐIR
Orlofsíbúðir - Hótel Sandafell Njótið n...
Ullarslá
Til sölu glæsileg íslensk ullarslá (græn að lit) með fallegum brúnum kraga, eins...
Yamaha FJR 1300 2005 ABS
Ekið 28 þús km.Umboðshjól.Skoðað 2013 Hliðartöskur og Topptaska. Nýtt afturdek...
 
Lausar kennarastöður við leik- og grunns
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik...
Sérhæft skrifstofustarf
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Samauglýsing ríkiskaup
Tilboð - útboð
* Nýtt í augl...
Grunn og leikskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Grunn- og leikskólakennarar ...