Samgöngumiðstöðin rís ekki

Samgöngumiðstöðin átti að rísa norðan við Hótel Loftleiðir. stækka

Samgöngumiðstöðin átti að rísa norðan við Hótel Loftleiðir. mbl.is/Þorkell Þorkelsson

Hætt var við áform ríkis og borgar um að reisa samgöngumiðstöð norðan við Hótel Loftleiðir á fundi Ögmundar Jónassonar, samgönguráðherra með Jóni Gnarr, borgarstjóra og Degi B. Eggertssyni, formanni borgarráðs í dag. Þess í stað verður kannað hvort og hvernig megi bæta aðstöðu fyrir flugfarþega austan við flugvöllinn.

Lengi hefur staðið til að reisa samgöngumiðstöð við austanverðan flugvöllinn. Árið 2002, í kjölfar mikilla endurbóta á Reykjavíkurflugvelli sagði Sturla Böðvarsson, þáverandi samgönguráðherra að næsta skref væri að reisa samgöngumiðstöð. Ríki og borg mynduðu vinnuhóp um samgöngumiðstöð árið 2005 og síðan hefur oft virst sem framkvæmdir væru við það að hefjast.  Með yfirlýsingu Kristjáns Möller, samgönguráðherra og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, borgarstjóra í apríl 2009 átti að setja aukinn kraft í undirbúninginn vegna samgöngumiðstöðvar og hefja framkvæmdir fyrir árslok.

Það hefur lengi legið fyrir að nýr meirihluti í borgarstjórn hafði takmarkaðan áhuga á samgöngumiðstöðinni og raunar var í haust ljóst að lítill og minnkandi stuðningur var við miðstöðina innan borgarkerfisins. Þá hefur komið berlega í ljós að áhugi fyrirtækja í almenningssamgöngum á að flytja í samgöngumiðstöðina er æði misjafn og Strætó taldi beinlínis að mikið óhagræði fælist í því að flytja þar inn. Flugfélag Íslands lýsti því einnig yfir í sumar að félagið væri að skoða að bæta aðstöðu á núverandi stað en með því mætti m.a. spara um 500 milljónir sem færu í gerð flughlaða á nýjum stað. 

S. Björn Blöndal, aðstoðarmaður Jóns Gnarr borgarstjóra, sagði í samtali við mbl.is að það hefði verið sameiginleg niðurstaða ríkis og borgar á fundinum í dag að slá samgöngumiðstöðina út af borðinu. Björn sagði að það hefði verið óskýrt hvert gagnið af fjárfestingunni yrði. „Það er ekki gott þegar miklir peningar eru í spilinu að menn geri bara eitthvað. Af því að það er líka lítið til af peningum,“ sagði hann. 

Af hálfu Besta flokksins hefur því verið lýst yfir að best væri að flugvöllurinn færi úr Vatnsmýri. Björn sagði að flokkurinn gerði sér á hinn bóginn grein fyrir að hann væri ekki á leið þaðan á næstunni. Þá hefði Ögmundur Jónasson, samgönguráðherra, tekið fram að hann vildi hafa flugvöllinn þarna áfram.

Skrifstofustjóra borgarstjórnar og ráðuneytisstjóra samgönguráðuneytisins var falið að kanna hvort þörf væri á að bæta aðstöðu fyrir flugfarþega. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
TIL SÖLU VÍNRAUÐ TOYOTA COROLLA
Til sölu vínrauð Toyota Corolla, árgerð 1993 . Ekinn 165.0...
Hermannaúlpa
Hermannaúlpa til sölu, 2 stk. L- XL. Upplýsingar í síma: 8935005...
Flott sjónvarp til sölu!
29 tommu túbu sjónvarp frá Sony til sölu. Það er 8 ára gamalt og í góðu lagi. T...
Óska eftir sparneytnum smábíl ca. árg. 05-09.
Óska eftir sparneynum bíl td. Toyota Yaris, corolla, Honda Jazz, Golf, Getz.... ...
 
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Samkoma
Félagsstarf
Sunnudagur27. maí - hv...
Framkvæmdastjóri
Stjórnunarstörf
Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (No...
Útboð
Tilkynningar
Grýtubakkahreppur Útbo...