Tekjur fimmfaldist á 20 árum
Stjórnendur Landsvirkjunar gera ráð fyrir að fyrirtækið muni tvöfaldast að stærð á næstu 20 árum, en að tekjur þess muni fimmfaldast á sama tíma. Ástæðan fyrir þessu er hækkandi verð á raforku. Þetta kom fram hjá Herði Arnarssyni, forstjóra Landsvirkjunar, á haustfundi fyrirtækisins.
Á síðustu 15 árum þrefaldaðist orkuvinnsla Landsvirkjunar. Hörður sagði að það væri því gert ráð fyrir hægari vexti á næstu árum en verið hefði. Tekjurnar myndu hins vegar vaxa mun hraðar. Arðsemi fyrirtækisins myndi því vaxa á næstu árum og það gæti farið að borga umtalsverðan arð til ríkisins árið 2016.
Hörður sagði að fram til aldamóta hefði verð á rafmagni á alþjóðlegum mörkuðum verið lágt. Mikil umframorka hefði verið í kerfinu og flest orkufyrirtæki hefðu verið undir stjórn hin opinbera. Þetta lága verð hefði takmarkað möguleika Landsvirkjunar í orkusölusamningum við stóra kaupendur.
Hörður sagði að frá árinu 2000 hefði verð á raforku farið hækkandi í heiminum og allar spár gerðu ráð fyrir að það ætti enn eftir að hækka. Þessi þróun hefði áhrif á Íslandi t.d. þegar kæmi að því að endurnýja orkusamninga til lengri tíma við stóra kaupendur. Eins myndu nýir viðskiptavinir Landsvirkjunar þurfa að taka tillit til verðþróunar á raforku.
Hörður fjallaði sérstaklega um fjárfestingar í orkuvinnslu á Norðausturlandi, þ.e. í Kröflu, Bjarnarflagi og Þeistareykjum. Hann sagði alveg ljóst að Landsvirkjun gæti ekki útvegað orku til álvers af stærðinni 346 þúsund tonn, líkt og álver Alcoa á Reyðarfirði. Það væri hins vegar hugsanlegt að Landsvirkjun gæti með virkjunum á Norðausturlandi útvegað orku fyrir 250 þúsund tonna álver.
Hörður sagði að áætlanir Landsvirkjunar miðuðu við að virkja í nokkrum smáum skrefum á Norðausturlandi. Miðað væri við að taka eina túrbínu í notkun á þriggja ára fresti. Ef stórir kaupendur væru að orkunni væri hugsanlegt að taka stærri skref, en þá yrði t.d. virkjanir fyrir 250 þúsund tonna álver teknar í notkun á 7-8 árum.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 15. nóvember 2011, Innlent Of lítil arðsemi af virkjunum
- Miðvikudagur, 16. nóvember 2011, Innlent Verð mun hækka
- Miðvikudagur, 19. október 2011, Innlent Reiði fyrir norðan
- Föstudagur, 5. febrúar 2010, Innlent Framkvæmdir ekki slegnar af
- Mánudagur, 1. febrúar 2010, Innlent Hefur ekki áhrif á Landsvirkjun
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































