7,5% atvinnuleysi
Skráð atvinnuleysi í október 2010 var 7,5% en að meðaltali 12.062 manns voru atvinnulausir í október og eykst atvinnuleysi um 0,4 prósentustig frá september, eða um 515 manns að meðaltali. Atvinnuleysið er 7,8% meðal karla og 7,2% meðal kvenna.
Körlum á atvinnuleysisskrá fjölgar um 416 eða um 0,6 prósentustig að meðaltali og konum um 99 að meðaltali eða um 0,3 prósentustig.
Mest fjölgar atvinnulausum hlutfallslega á Vesturlandi en þar fjölgar um 58 manns á atvinnuleysisskrá að meðaltali. Atvinnuleysið er 8,4% á höfuðborgarsvæðinu en 5,9% á landsbyggðinni. Mest er það á Suðurnesjum 12,2%, en minnst á Norðurlandi vestra 2,5 %.
Alls voru 13.280 atvinnulausir í lok október. Þeir sem voru atvinnulausir að fullu voru hins vegar 10.914, af þeim voru 3.824 í einhvers konar úrræðum á vegum Vinnumálastofnunar, auk þess sem mikill fjöldi fer í ráðgjafarviðtöl, á kynningarfundi og í vinnumiðlun.
Fjölgun atvinnulausra í lok októbermánaðar frá lokum september nam 630 en 495 fleiri karlar voru á skrá og 135 fleiri konur. Á landsbyggðinni fjölgar um 317 en um 313 á höfuðborgarsvæðinu.
54% atvinnulausra hafa verið atvinnulausir í sex mánuði eða lengur
Fjöldi þeirra sem hafa verið atvinnulausir lengur en 6 mánuði er nú 7.205 og fækkar um 65 frá lokum september og er um 54% þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá í lok október. Þeim sem verið hafa atvinnulausir í meira en eitt ár fjölgar úr 4.534 í lok september í 4.614 lok október.
Alls voru 2.168 á aldrinum 16‐24 ára atvinnulausir í lok október en 1.996 í lok september eða um 16% allra atvinnulausra í október og fjölgar um 172 frá því í september.
Í október 2009 var fjöldi atvinnulausra ungmenna 2.538 og hefur því fækkað um 370 frá október 2009.
Alls voru 2.147 erlendir ríkisborgarar án atvinnu í lok október, þar af 1.297 Pólverjar eða um 60% þeirra útlendinga sem voru á skrá í lok mánaðarins. Langflestir atvinnulausra erlendra ríkisborgara voru starfandi í byggingariðnaði eða 543.
Spá auknu atvinnuleysi í nóvember
Í nóvember 2009 var atvinnuleysi 8% og jókst úr 7,6 % í október. Vinnumálastofnun áætlar að atvinnuleysið í nóvember aukist og verði á bilinu 7,6 %‐8 %.
Bloggað um fréttina
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir Rétt að vísa á umfjöllun frá 11. nóvember. -
Sigurður Antonsson Meðalhóf vandfundið -
Ásdís Sigurðardóttir Þetta er mjög lítið tel ég.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 13. desember 2010, Innlent Atvinnuleysi mælist 7,7%
- Föstudagur, 13. ágúst 2010, Innlent Atvinnuleysi mælist 7,5%
- Mánudagur, 12. október 2009, Innlent Atvinnuleysið 7,2%
- Fimmtudagur, 13. október 2011, Innlent Enn dregst atvinnuleysi saman
- Fimmtudagur, 14. janúar 2010, Innlent Atvinnuleysið 8,2%
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































