Hafnaði kröfu um skil á lóð
Hæstiréttur hefur staðfest dóm héraðsdóms sem hafnaði kröfu fyrirtækis um að fá að skila lóð sem því hafði verið úthlutað í Reykjavík. Hæstiréttur hafnaði rökum fyrirtækisins um að forsendur fyrir lóðaúthlutuninni hefðu brostið eftir bankahrunið.
Fyrirtækið Léttkaup ehf. fékk úthlutað atvinnuhúsalóð við Hádegismóa í Reykjavík í september 2007. Í lok október 2008 óskaði fyrirtækið eftir því að fá að skila lóðinni enda hefðu allar forsendur breyst. Reykjavíkurborg hafnaði erindinu.
Reykjavíkurborg tók á tímabilinu frá júní fram í byrjun október 2008 í sex tilvikum við lóðum undir atvinnuhúsnæði, sem áður hafði verið úthlutað, og endurgreiddi gjöld vegna þeirra. Lögmenn borgarinnar sögðu fyrir dómi að eftirspurn hafi á þeim tíma lengi verið meiri en framboð af slíkum lóðum og hún af þeim sökum mátt ætla að sér tækist að úthluta lóðunum og selja byggingarétt á ný.
Hæstiréttur taldi að við skil á lóðum hefði verið gætt málefnalegra sjónarmiða. Í dómi Hæstaréttar kom fram að í lóðarúthlutun borgarinnar hafi í senn falist stjórnvaldsákvörðun og gerningur á sviði einkaréttar. Þetta tvöfalda eðli úthlutunarinnar hafi þó takmarkað gildi við úrlausn málsins þar sem Reykjavíkurborg væri einnig bundin af meginreglum stjórnsýsluréttar við ráðstöfun réttinda á sviði einkaréttar.
Hæstiréttur taldi að aðeins kæmi til greina að afturkalla úthlutina að borgin hefði vanefnt skyldur sínar samkvæmt skilmálunum þannig að máli skipti fyrir hagsmuni hans. Ekki hefði verið sýnt fram á þetta.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 12. maí 2011, Innlent Fá ekki að skila lóðum
- Miðvikudagur, 6. júlí 2011, Innlent Ítarlegri gögn leiddu til annarrar útkomu
- Laugardagur, 23. júlí 2011, Innlent Áfrýjar Brimborgardómi
- Fimmtudagur, 6. maí 2010, Innlent Reykjavíkurborg tapar þremur lóðamálum
- Miðvikudagur, 28. apríl 2010, Innlent Brimborg kærir Reykjavíkurborg til umboðsmanns
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































