Jarðskjálfti varð á Reykjanesi rétt eftir miðnætti og fannst hann vel
víða á höfuðborgarsvæðinu. Á vef Veðurstofu Íslands segir að skjálftinn
hafi verið 2,8 stig á Richter og að upptök hans hafi verið 5,1 km
austnorðaustur af Keili.
Tekið skal fram að um óyfirfarnar niðurstöður er að ræða.