Refsing fyrir rangar sakargiftir þyngd
Hæstiréttur hefur dæmt Sophiu Hansen í 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að bera á Sigurð Pétur Harðarson rangar sakargiftir. Sophia var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmd í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Sophia var ákærð fyrir að hafa falið lögmanni að kæra fyrir sína hönd fölsun á nafni sínu á þremur viðskiptabréfum, veðskuldabréfi, tryggingabréfi og skuldaviðurkenningu, upp á um 42 milljónir króna, og í skýrslutöku hjá lögreglu lýst því yfir að hana grunaði Sigurð Pétur Harðarson, eða einhvern á hans vegum, um að hafa falsað undirskriftir sínar. Þannig hafi Sophia komið því til leiðar að Sigurður Pétur var ranglega sakaður um skjalafals.
Um er að ræða mál, sem teygir anga sína aftur til ársins 1990 þegar forræðismál Sophiu vegna dætra hennar hófst fyrir tyrkneskum dómstólum. Hún barðist fyrir því að fá að umgangast dætur sínar, þær Dagbjörtu og Rúnu. Faðir stúlknanna, Halim Al, stóð í vegi fyrir því.
Sophia var árið 2009 dæmd til að greiða Sigurði Pétri 20 milljónir vegna vangoldinna lána sem hann veitti henni í tengslum við forræðisdeiluna. Hún var síðan ákærð fyrir að bera Sigurð Pétur röngum sökum, sem leiddi til þess að hann var grunaður um skjalafals árið 2007.
Um er að ræða skuldabréf upp á tugi milljóna, sem Sophia sagði Sigurð Pétur hafa falsað nafn hennar á. Rannsókn erlends rithandarsérfræðings leiddi hins vegar í ljós, að nær engar líkur væru á að Sigurður Pétur hefðu skrifað nafn Sophiu á bréfin og miklar líkur væru á að Sophia hefði sjálf skrifað undir þau.
Hérasdómur fann Sophiu seka um rangar sakargiftir og Hæstiréttur staðfesti þá niðurstöðu. Í dómi Hæstaréttar segir, að við ákvörðun refsingar sé höfð hliðsjón af því hversu þung hegning sé lögð við brotinu, sem gefið sé til kynna að viðkomandi hafi drýgt. Því sé refsing Sophiu ákveðin fangelsi í 12 mánuði en vegna þess að hún hafi ekki gerst brotleg við lög áður sé refsingin skilorðsbundin.
Bloggað um fréttina
-
Björn Birgisson Harmleikur -
Páll Jónsson Það er eiginlega ekkert um þetta að segja
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 12. febrúar 2010, Innlent Í skilorðsbundið fangelsi
- Fimmtudagur, 18. mars 2010, Innlent Dæmd til að greiða 20 milljóna skuld
- Þriðjudagur, 2. febrúar 2010, Innlent Vill Sophiu í 3-5 mánaða fangelsi
- Þriðjudagur, 2. febrúar 2010, Innlent Dóttir Sophiu kom ekki
- Miðvikudagur, 7. september 2011, Innlent Kókaínneysla ósönnuð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































