Fréttaskýring: Kókaínneysla virðist aftur vera að aukast

Kókaín. stækka

Kókaín. mbl.is/Júlíus

Morgunblaðið Guðni Einarsson gudni@mbl.is

Endanleg niðurstaða efnagreiningar fíkniefna, sem lögreglan lagði hald á í fimm húsleitum í síðasta mánuði, er væntanleg eftir helgina, að sögn Karls Steinars Valssonar, yfirmanns fíkniefnadeildar LRH. Lagt var hald á amfetamín, kókaín og um tvö kíló af marijúana.

Einnig tók lögreglan reiðufé að andvirði hátt á sjöundu milljón króna og er talið að um afrakstur fíkniefnasölu sé að ræða. Var þar bæði um að ræða íslenskar krónur og evrur. Þá var lagt hald á ýmis önnur verðmæti og hluti sem taldir eru tengjast ætlaðri brotastarfsemi.

Fimm erlendir ríkisborgarar, karlmenn á þrítugs- og fertugsaldri, voru handteknir í tengslum við málið. Fjórir voru handteknir í upphafi og sátu í gæsluvarðhaldi frá 21. október til 11. nóvember og eru í farbanni til 8. desember. Sá fimmti var handtekinn í síðustu viku og úrskurðaður í gæsluvarðhald til 25. nóvember.

Í mati ríkislögreglustjóra á skipulagðri glæpastarfsemi og hættu á hryðjuverkum, sem kom út í mars sl., er m.a. minnst á starfsemi útlendra glæpahópa. Karl Steinar telur að þróun starfsemi erlendra brotahópa hér virðist vera lík og spáð var. Hann sagði erfitt að meta hvort magn fíkniefna í umferð hefði breyst.

„Það virðist vera nokkuð stöðugt framboð af flestum fíkniefnum en kókaín virðist aftur vera að aukast,“ sagði Karl Steinar. Hann sagði að kókaín hefði verið talsvert áberandi í góðærinu en dregið hefði úr því meðan kreppan var sem dýpst. Aukið framboð af því nú gæti verið tákn um að fjárráð fólks séu að aukast.

„Amfetamín er langalgengasta fíkniefnið og marijúana einnig en það er kannski meira í yngri hópunum. Síðan er kókaínið svona hliðarafurð og okkur sýnist það vera heldur á leiðinni til baka,“ sagði Karl Steinar. Efnið er yfirleitt selt í duftformi. Hann segir að reynt sé að smygla kókaíni í ýmsum myndum á milli landa. Venjulega hefur verið reynt að smygla því hingað sem dufti af miklum styrk. Efnið er svo drýgt með íblöndunarefnum áður en það fer á markað. Kókaín hefur einnig borist hingað í fljótandi formi.

Fíkniefni
» Amfetamín og marijúana eru algengustu ólöglegu fíkniefnin hér á landi. Kókaín er aftur að aukast í umferð.
» Amfetamín er búið til við efnafræðilegt ferli. Kókaín er náttúrulegt efni og framleitt úr blöðum kókajurtarinnar.
» Brotahópar í Evrópu hafa meðal annars blandað kókaíni í föt og reynt að smygla því þannig. Einnig hefur því verið blandað í síróp o.fl. til að lauma efninu á milli landa.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Stórar kjarrivaxnar útsýnislóðir
í skjólgóðri hlíð mót suðri í Hvalfirði, 55 km frá Rvík. Frábært útsýni. Heitt v...
Vinnustofa óskast
Óska eftir að taka á leigu 20-50 fm atvinnuhúsnæði fyrir grafíska hönnun og hljó...
9 FM VANDAÐ BJÁLKAHÚS
9 fm vandað bjálkahús úr þéttum viði - fæst með eða án þakefnis. Verð kr. 374.90...
Aquaflex grindarbotnsþjálfi
Hvað gerist ef þú hlærð of mikið, hnerrar óvænt, beygir þig fram eða ferð í leik...
 
Prentari
Iðnaðarmenn
Prentari óskast Héraðs...
Intellecta
Stjórnunarstörf
Bæjarstjóri Sveitarfélagsins Garði La...
Opinn fundur
Félagsstarf
Félag sjálfstæð...
Bæjarlögmaður
Sérfræðistörf
Bæjarlögmaður Kópavogsbær auglýsir stö...