Hlíðarfjall opnar á fimmtudag
Stefnt er að því að opna í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar á fimmtudaginn. Um helmingurinn af snjónum í skíðabrautunum var framleiddur í snjóvélum. "Við værum sennilega ekki að opna nema vegna þess að við framleiðum snjó," segir forstöðumaður skíðasvæðisins. Fleiri skíðasvæði á landsbyggðinni eru opin.
Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður í Hlíðarfjalli, segir að mun meira hafi snjóað á láglendi við innanverðan Eyjafjörð en í Hlíðarfjalli. Þar hafi verið kaldara og þurrara en nær sjávarmáli og við slíkar aðstæður staldri snjórinn síður við. Töluvert hafi snjóað en ekki nærri eins mikið og í bænum.
Starfsmenn skíðasvæðisins voru við störf um helgina og tróðu snjóinn og færðu hann til. Vegna ófærðar urðu þeir að fara í vinnuna á vélsleðum. „Við erum eins og bændur, við nýtum aðstæður til hins ýtrasta,“ segir hann. Snjókomu á skíðasvæðum megi líkja við heyskap hjá bændum.
Í Hlíðarfjalli hefur verið framleiddur snjór frá árinu 2006. Framleiðslan í haust hefur staðið yfir með hléum frá 20. október. Aðeins er framleidd í frosti, því meira sem frostið er því betri og meiri er framleiðslan. Það er hægt að framleiða í mínus einni en við þurfum að sjá fimm til sex stiga frost til að það skili einhverju," segir Guðmundur Karl.
Æfingar hefjast í Hlíðarfjalli í dag en svæðið verður opnað almenningi á fimmtudag. Fyrsta kastið verður aðeins neðra svæðið opnað en lítið vantar upp á til að hægt verði að opna Strýtuna og Strompinn.
Frá því snjóframleiðsla hófst hefur skíðsvæðið í Hlíðarfjalli verið opnað í kringum mánaðarmót nóvember og desember, stundum fyrr og stundum aðeins seinna. Guðmundur Karl segir fólk þurfa að venjast þessum nýja veruleika, að hægt sé að fara á skíði í byrjun desember. Sífellt fleiri nýti sér þetta og um jól og áramót sé mikil fjöldi í fjallinu. Töluvert af skíðamönnum ljúki gamla árinu með því að fara á skíði og hefji hið nýja á sama hátt, bæði heimamenn sem aðkomumenn.
Skíðasvæði landsins hafa opnað eitt af öðru undanfarna daga og það styttist í að fleiri opni.
Guðmundur Karl bendir á að skíðasvæðið á Siglufirði hafi opnað fyrir um viku, stutt sé að opni á Sauðárkróki og á Dalvík en á Dalvík snjóaði reyndar minna en á Akureyri um helgina. Skíðasvæðið í Tungudal við Ísafjörð hafi opnað um helgina. Á Austurlandi hafi gert „góða hríð“ og því styttist væntanlega í að austfirsk skíðasvæði opni.
Guðmundur Karl fullyrðir að útlit sé fyrir góðan skíðavetur. „Þegar við förum að fá snjó kemur í ljós að það er mikill áhugi fyrir útiveru í fjöllum,“ segir hann. Á Íslandi sé gríðarlega hátt hlutfall skíðamanna, hugsanlega það hæsta í heimi, en útfrá skoðanakönnunum og fleiru megi álykta að um 35 - 40.000 manns fari á skíði árlega, sumir sjaldan en aðrir oft.






































