Aðildargluggi að lokast

Evrópufáninn lagaður til fyrir hátíðahöld í tilefni inngöngu tíu nýrra …
Evrópufáninn lagaður til fyrir hátíðahöld í tilefni inngöngu tíu nýrra ríkja í ESB. reutres

Þegar Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra afhenti Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, umsókn Íslands að Evrópusambandinu í júlí lét sá fyrrnefndi þau orð falla að hann bæri þá von í brjósti að Íslandi gæti orðið samferða Króatíu í ESB en það nýfrjálsa ríki sótti fyrst um aðild 2003.

Spurður um þessar væntingar svarar Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, því til að hann telji ólíklegt að þær rætist.

„Ég hef efasemdir um það. Það voru ýmsir sem töldu að svo gæti orðið. Þegar við fórum af stað töldu einmitt margir að þjóðirnar gætu fylgst að,“ segir Árni Þór og vísar til viðvarana evrópskra stjórnmálamanna um að byggja ekki upp of miklar væntingar um að aðildarferlið gangi hratt.

Spurður í Morgunblaðinu í dag til hvaða tímaramma sé nú horft svarar Árni Þór því að „bjartsýni [sé] að halda að samningaviðræðum verði lokið vorið 2012“.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert