Fagna því að samgöngumiðstöð var blásin af

Samtök um betri byggð fagna þeim áfangasigri sem náðist á fundi borgaryfirvalda og samgönguráðherra um að hætt var við byggingu samgöngumiðstöðvar í Vatnsmýrinni.

„Loksins hafa borgaryfirvöld risið undir skyldu sinni að gæta  hagsmuna okkar Reykvíkinga, með því að slá af borðinu áform samgönguyfirvalda um að byggja svokallaða samgöngumiðstöð í  Vatnsmýrinni, sem auðvita var aldrei annað en ný flugstöð fyrir Vatnsmýrarflugvöllinn. Um leið lýsti meirihlutinn í borginni því yfir, að hann stefni að því að flytja innanlandsflugið úr Vatnsmýrinni.

Samtökum um betri byggð er kunnugt um að mikill stuðningur er við þessa niðurstöðu í öllum flokkum í borginni.

Viðsnúningurinn er ekki aðeins fólginn í því að stöðva byggingu óþarfa mannvirkis í miðju framtíðar byggingarlandi Reykvíkinga,  heldur eru borgaryfirvöld að endurheimta  skipulagsvaldið á borgarlandinu úr höndum samgönguyfirvalda sem áratugum saman hafa beitt borgina afarkostum í skipulagsmálum.

Vegna úthlutunarvalds síns á fé úr vegasjóði, til stofnbrautanna í borginni, hafa samgönguyfirvöld getað ráðið því sem þau vilja í borgarskipulaginu, og þvingað fram framkvæmdir til þess eins að festa flugið í sess. Má nefna  endurbygging flugbrautanna árið 2002,  þótt Reykvíkingar væru nýbúnir að kjósa flugvöllinn burt  fyrir árslok 2016,  færsla Hringbrautar í yfirborði en ekki í stokk, og síðast nýja flugstöð  fyrir Vatnsmýrarflugvöllinn.

Loksins hafa borgaryfirvöld snúið blaðinu við og sagt hingað og ekki lengra og  tekið til sín það valdi sem við Reykvíkingar höfum falið þeim, en samkvæmt stjórnsýslulögum er skipulagsvaldið er alfarið í höndum kjörinna fulltrúa sveitafélaga," segir meðal annars í fréttatilkynningu frá samtökunum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Lögreglan við eftirlit.

Fimm teknir fyrir of hraðan akstur við Borgarnes

Í gær, 23:30 Fimm voru teknir fyrir að aka of greitt í grennd við Borgarnes í dag. Að öðru leyti virðist þessi fyrsta ferðahelgi sumarsins hafa gengið vel í umferðinni víðast hvar um landið. Meira »
Kirkjugestir voru teknir til altaris.

Mótorhjólamenn fjölmenntu í messu

Í gær, 21:56 Það var talsvert annað yfirbragð yfir messu í Digraneskirkju í kvöld en venjulega, en þar fór fram svokölluð mótorhjólamessa. Í kirkjunni voru leðurklæddir mótorhjólamenn og utan við kirkjuna var röð glæsilegra mótorhjóla. Meira »

Bjartviðri víðast hvar

04:35 Breytileg átt, víða 3-8 m/s, verður á landinu í dag og bjartviðri, en skýjað og sums staðar þokuloft fram eftir morgni, einkum vestantil. Hæg austlæg eða breytileg átt undir hádegi og yfirleitt léttskýjað. Hiti 8 til 20 stig, hlýjast í innsveitum. Meira »

Hrapaði ofan í gil

Slysið varð skammt frá Seljalandsfossi.
Í gær, 19:31 Bresk kona stórslasaðist þegar hún hrapaði ofan í gil stutt frá tjaldstæðinu við Hamragarða, skammt innan við Seljalandsfoss við Þórsmerkurveg. Meira »

Sé ekki í samkeppni við þingið

Þóra Arnórsdóttir og maður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.
Í gær, 18:09 Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi segir að forseti sem rekur eigin stjórnmálastefnu í samkeppni við þjóðkjörið þing geti ekki ræktað sitt meginhlutverk sem sé að vera sameiningarafl. Meira »

Eldhúsdagsumræðu á Alþingi

Í gær, 21:07 Eldhúsdagsumræður fara fram á Alþingi annað kvöld. Samkvæmt starfsáætlun þingsins á að fresta fundum Alþingis á fimmtudag, en talið er ólíklegt að sú áætlun standist. Meira »

Konan fannst látin

Í gær, 19:11 Lettneska konan sem leitað hefur verið að við Meðalfellsvatn fannst látin síðdegis í dag. Hennar hafði verið saknað frá 13. maí. Flest bendir til að talsvert sé síðan hún lést. Meira »

Kiwanismenn máluðu vitann

Kiwanismaðurinn Björn Viðar mundar rúlluna af fagmennsku.
Í gær, 18:08 Félagar í Kiwansiklúbbnum Skjálfanda á Húsavík notuðu veðurblíðuna í dag til að mála vitann á Húsavíkurhöfða en hann var farinn að láta á sjá. Meira »

Leitarmenn kallaðir til baka

Ligitu Solomenceva
Í gær, 18:03 Búið er að kalla til baka þá sem leitað hafa að lettnesku konunni við Meðalfellsvatn í dag. Ekki hafa borist staðfestar fréttir af örlögum konunnar. Meira »

Þröstur og Bragi jafnir

Í gær, 17:27 Jafntefli varð í fjórðu og síðustu skák úrslitaeinvígis Braga Þorfinnssonar (2449) og Þrastar Þórhallssonar (2424) um Íslandsmeistaratitilinn í dag en teflt var í Stúkunni við Kópavogsvelli. Meira »

Bensíngjöfin festist niðri

Í gær, 17:46 Bifreið skemmdist þegar henni var ekið stjórnlaust inn í trjágróður við Hvassaleiti í Reykjavík um kl. 13:30 í dag.  Meira »

Stöðvaður eftir ofsaakstur

Í gær, 17:23 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í dag ofsaakstur fólksbíls sem ók á miklum hraða eftir Miklubraut. Hann ók m.a. utan í bíl. Ökumaður grunaður um ölvun og vímuefnaneyslu. Meira »

Alsírsku drengirnir áfrýja

Í gær, 16:25 Alsírsku drengirnir sem sakfelldir voru í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum við komu til Íslands hafa áfrýjað dómnum til hæstaréttar. Héraðsdómur dæmdi þá til 30 daga fangelsisvistar þann 30. apríl síðastliðinn. Meira »

Ákærður fyrir að stinga mann

Guðgeir Guðmundsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir árásina.
Í gær, 14:26 Ákæra gegn Guðgeiri Guðmundssyni, sem sakaður er um að hafa 5. mars. sl. stungið tvo starfsmenn lögmannsstofnunnar Lagastoða, verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Annar mannanna særðist lífshættulega og lá í marga daga á gjörgæsludeild. Meira »

Klára kvótamálin í vikunni

Atvinnuveganefnd stefnir að því að klára umfjöllun um frumvarp um veiðigjald í vikunni.
Í gær, 14:05 Boðaður hefur verið fundur í atvinnuveganefnd Alþingis á morgun til að ræða um kvótafrumvörpin. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður nefndarinnar, segir að frumvörpin verði ekki afgreidd úr nefndinni á morgun, en það verði gert síðar í vikunni. Meira »

Listflug við Reykjavíkurflugvöll

Á sýningunni var hægt að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum.
Í gær, 15:54 Fjöldi fólks hefur í dag fylgst með flugvélum sýna listflug á Reykjavíkurflugvelli, en Flugmálafélags Íslands stóð fyrir flugsýningu þar sem hægt var að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum. Meira »

Landsbjörg leitar enn að Ligitu

Ligitu Solomenceva
Í gær, 14:22 Landsbjörg leitar í dag að hinni 42 ára Ligitu Solomenceva frá Lettlandi. En til hennar hefur ekkert spurst síðan 13 maí. Hún var í sumarbústað við Meðalfellsvatn og var ein á ferð. Meira »

Hreint hjarta besta myndin

Grímur Hákonarson.
Í gær, 13:34 Heimildamynd Gríms Hákonarsonar Hreint hjarta var valinn besta heimildamyndin á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda sem haldin var í sjötta sinn á Patreksfirði um helgina. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BIFREIÐASTILLINGAR NICOLAI
NICOLAI bifreiðastillingar, Faxafeni 12, sími 588 2455. Véla- og hjólastillingar...
ORLOFSÍBÚÐIR
Orlofsíbúðir - Hótel Sandafell Njótið n...
Ullarslá
Til sölu glæsileg íslensk ullarslá (græn að lit) með fallegum brúnum kraga, eins...
Yamaha FJR 1300 2005 ABS
Ekið 28 þús km.Umboðshjól.Skoðað 2013 Hliðartöskur og Topptaska. Nýtt afturdek...
 
5 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
Þjónustufulltrúi.
Skrifstofustörf
Þjónustufulltrúi Fyr...