1.600 milljónum varið í leysa húsnæðisvanda

Frá undirritun samkomulagsins í morgun, Jón Gnarr borgarstjóri og Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra. stækka

Frá undirritun samkomulagsins í morgun, Jón Gnarr borgarstjóri og Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra.

Framkvæmdir við nauðsynlegar úrbætur í aðgengismálum Menntaskólans við Sund hefjast árið 2012 og það sama ár er áætlað að ljúka framkvæmdum sem standa yfir á húsnæði Fjölbrautarskólans við Ármúla. Þetta er meðal þess sem kemur fram í samkomulagi ríkis og Reykjavíkurborgar sem undirritað var í morgun.

Mennta- og menningarmálaðherra, Katrín Jakobsdóttir, og borgarstjóri, Jón Gnarr, skrifuðu í dag undir yfirlýsingu um áframhaldandi samstarf ríkis og borgar í húsnæðismálum framhaldsskóla í Reykjavík til ársins 2014. Samkomulagið tryggir að leyst verður úr húsnæðisvanda þriggja skóla á tímabilinu 2011 til 2014 og verður 1.600 milljónum króna varið til þess verkefnis.

„Kvennaskólinn í Reykjavík hefur lengi verið starfræktur í miðborginni við þröngan húsakost. Til þess að bæta aðstöðu skólans og um leið tryggja starfsemi hans til framtíðar í miðborginni mun gamli Miðbæjarskólinn verða nýttur undir starfsemi hans.

Samkomulag liggur fyrir um kaup ríkisins á 60% hlut í húsnæðinu af Reykjavíkurborg sem áfram mun eiga 40%, í samræmi við ákvæði laga um stofnkostnað opinberra framhaldsskóla. Eftir áramót hefjast framkvæmdir við endurbætur á húsnæðinu og mun það verða tilbúið undir starfsemi Kvennaskólans á nýju skólaári," segir í tilkynningu.

Á næstu misserum verður ráðist í nauðsynlegar framkvæmdir til úrbóta í aðgengismálum. Einnig er gert ráð fyrir viðbyggingu sem að stærstum hluta mun verða kennslurými. Áformað er að undirbúningur og  framkvæmdir geti hafist á árinu 2012.

Við Fjölbrautaskólann við Ármúla hafa staðið yfir framkvæmdir vegna viðbyggingar við húsnæði skólans. Þær framkvæmdir munu halda áfram og er áformað að þeim ljúki samkvæmt áætlun á árinu 2012.

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, segir í fréttatilkynningu um samkomulagið:
„Það er mjög mikilvægt að samstarfi ríkis og borgar við uppbyggingu framhaldsskóla í borginni sé haldið áfram, en með því er leyst  úr aðkallandi húsnæðisvanda þriggja skóla á næstu árum. Sérstaklega gleðilegt þykir mér að um leið og framtíð Kvennaskólans í miðborginni er tryggð fær hús gamla Miðbæjarskólans aftur sitt upprunalega hluverk – að hýsa skólastarfsemi.“

Jón Gnarr, borgarstjóri segir í fréttatilkynningu um samkomulagið:
„Það er mikil ánægja hjá borginni með að Kvennaskólanum hafi verið tryggð framtíð í gamla Miðbæjarskólanum. Framhaldsskólunum fylgir líf og auðugra mannlíf og gleðiefni að Miðbæjarskólinn sé aftur orðinn að skóla. Ekki síður erum við ánægð með að Menntaskólinn við Sund og Fjölbrautarskólinn við Ármúla sjái nú fram á bætta aðstöðu.“


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu Harley davidson 100ára afmælisútgáfa
Harley davidson Dyna glide(fxdvg wide 100ára afmælisútgáfa uppl 6624961...
Trúlofunar- og giftingahringar
Auk gullhringa eigum við m.a. titanium og tungstenpör á fínu verði. Sérsmíði, fr...
Múrvél
Til sölu Múrvél lítið notuð verð 700.000 kr sími 8919193...
CAVALIER HVOLPAR
Cavalier hvolpar til sölu. Erum með yndislega cavalier hvolpa til sölu. Kíktu á ...
 
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Opinn fundur
Félagsstarf
Félag sjálfstæð...
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...