Framhaldsskólanemar boða mótmæli

Alþingishúsið við Austurvöll
Alþingishúsið við Austurvöll Ómar Óskarsson

Samband íslenskra framhaldsskólanema hefur boðað til mótmæla á Austurvelli klukkan 11:30 þar sem niðurskurði í menntamálum er mótmælt.

Segir á Fésbókarsíðu mótmælanna að mótstaða nema verði sýnd á sjónrænan hátt og eru námsmenn  beðnir um að koma í málningargöllum

„Löðrandi í gerviblóði viljum við koma skilaboðum á framfæri: „Hættið að skera okkur niður!”, segir á Fésbókarsíðu mótmælanna.

Mótmælin verða frá 11:30-14:00 fyrir framan Alþingishúsið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert