Kokkar í heimsmeistarakeppni
Lokaæfing kokkalandsliðsins fór fram í Grillinu á Hótel Sögu á mánudaginn var. Ljósmynd/Kokkalandsliðið
Íslenska kokkalandsliðið fer á morgun til Lúxemborgar og tekur þar þátt í heimsmeistaramóti í matreiðslu, Expogast- Culinary World Cup. Liðsmenn eru 15 talsins auk þriggja fylgdarmanna. Liðinu er skipt í „heita“ og „kalda“ liðið.
Heimsmeistarakeppnin fer fram í nokkrum áföngum. Keppt verður í köldu borði sunnudaginn 21. nóvember og í heitum réttum þriðjudaginn 23. nóvember. Í fréttatilkynningu kokkalandsliðsins segir m.a.:
„Kaldaborðið er sýningarborð með mat sem er búið að setja í hlaup svo að hann haldist lengur fallegur og ferskur. Hér er ekki verið að keppa í bragði heldur samsetningu á réttum, útliti og faglegum vinnubrögðum. Á borðinu eru ýmiskonar réttir, allt frá pinnamat, forréttum, aðalréttum til eftirrétta. Kokkalandsliðið vinnur viðstöðulaust í 30 klst til að undirbúa þennan lið svo allt sé sem ferskast þegar dómararnir koma snemma morguns.
Á þriðjudeginum fer fram sá liður keppninnar þar sem keppt verður í þriggja rétta máltíð. Í þessum lið keppa fimm lönd í einu og hvert land afgreiðir 110 gesti sem velja frá hvaða landi þeir fá matinn og borga fyrir eins og á veitingahúsi. Í síðustu keppnum hefur alltaf verið uppselt hjá íslenska liðinu og á það einnig við um þessa keppni. Þeir sem sitja svo í dómnefnd eru þaulreyndir matreiðslumeistarar sem hafa alþjóðleg dómararéttindi í matreiðslu.
Matseðillinn er ekki af verri endanum og er haft að leiðarljósi að velja íslenskt hráefni:
· Sykursöltuð bleikja og bleikjutartar á íslensku bankabyggi með blómkáli, pönnusteiktum humri, humarsósu og kryddjurtajógúrti
· Lambafillet með sveppum í stökkum hjúp með lambatungu - og skanka, gulrótarfroðu og seljurótarkartöflu ásamt gulrótum og rófum.
· Karmellað hvítsúkkulaði með tröllaldin og gulleplum. Borið fram með súkkulaðidufti og kryddjurtasnjó.“
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 25. nóvember 2010, Innlent Kokkalandsliðið í 7. sæti heimslistans
- Mánudagur, 22. nóvember 2010, Innlent Silfur fyrir kalt borð á HM
- Mánudagur, 7. nóvember 2011, Innlent Tap gegn Georgíu
- Föstudagur, 18. febrúar 2011, Innlent Fjögur bridspör í landsliðshóp
- Fimmtudagur, 15. september 2011, Innlent Æft fyrir HM í bridge
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































